Árið 2022 er þó sérstakt fyrir báða þessa miklu sigurvegara því í fyrsta sinn sem þau mætast á mögnuðum ferlum sínum.
Anníe Mist og Froning hafa bæði orðið heimsmeistarar oftar en einu sinni og staðið mörgum sinnum á verðlaunapallinum.
Froning varð heimsmeistari fjórum sinnum í röð og Anníe var fyrsta konan til að vinna heimsmeistaratitilinn tvisvar. Froning var í ellefta sinn á verðlaunapallinum í fyrra en Anníe í sjötta sinn.
Þá voru þau að keppa í einstaklingskeppni og í sitt hvorum flokknum. Í ár eru þau aftur á móti að keppa á móti hvoru öðru með liðum sínum í liðakeppninni.
Bæði eiga þau það sameiginlegt að vera orðnir foreldrar og eigendur af CrossFit stöð. Þau hafa líka verið tvö af stærstu andlitum íþróttarinnar í meira en áratug.
Margir bíða spenntir eftir því að sjá þau keppa með liðum sínum á heimsleikunum í Madison í Wisconsin fylki frá 3. til 7. ágúst næstkomandi.
Anníe Mist mætir í fyrsta sinn til leiks með liði sínu CrossFit Reykjavík en Rich Froning og félagar hjá liði CrossFit Mayhem hafa unnið heimsmeistaratitilinn fimm sinnum þar á meðal í fyrra.
Froning skipti úr einstaklingskeppninni yfir í liðakeppninni árið 2015 en þá var hann búinn að vinna fjóra heimsmeistaratitla í röð í karlaflokki. Lið hans hefur unnið alla heimsmeistaratitla síðan fyrir utan 2017 og 2020. 2017 varð CrossFit Mayhem liðið í öðru sæti en árið 2020 fór liðakeppnin ekki fram vegna kórónuveirunnar.