Messi hefur unnið til verðlaunanna oftar en nokkur annar, eða alls sjö sinnum, nú seinast á síðasta ári. Hann var fyrst tilnefndur árið 2006 og tók verðlaunin með sér heim fjögur ár í röð frá 2009-2012.
Argentínumaðurinn hefur hins vegar ekki fundið sig almennilega eftir að hann gekk í raðir Paris Saint-Germain frá Barcelona. Í 27 deildarleikjum fyrir PSG hefur Messi aðeins skorað átta mörk og lagt upp önnur 15. Fyrir flesta aðra leikmenn er það langt frá því að vera slæm tölfræði, en þegar þú heitir Lionel Messi býst fólk við meiru frá þér.
Á listanum má sjá nöfn á borð við Karim Benzema, Cristiano Ronaldo, Harry Kane, Robert Lewandowski, Erling Haaland og Kylian Mbappe, en flestir búast við því að það verði einmitt Benzema sem hreppi verðlaunin í ár.
Benzema vann spænsku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu með Real Madrid á tímabilinu þar sem leikmaðurinn skoraði 44 mörk í 46 leikjum. Þá var hann einnig valinn besti leikmaður Meistaradeildarinnar á seinasta tímabili.
Les 30 nommés au Ballon d’Or ! ✨ (1/6)
— L'ÉQUIPE (@lequipe) August 12, 2022
🇧🇪 Thibaut Courtois@realmadrid
🇵🇹 Rafael Leão@acmilan
🇫🇷 Christopher Nkunku@RBLeipzig
🇪🇬 Mohamed Salah@LFC
🇩🇪 Joshua Kimmich@FCBayern#ballondor pic.twitter.com/SiLO0wggbr
Listinn í heild sinni
Thibaut Courtois (Real Madird)
Mohamed Salah (Liverpool)
Rafael Leao (AC Milan)
Christopher Nkunku (RB Leipzig)
Joshua Kimmich (Bayern Munich)
Trent Alexander-Arnold (Liverpool)
Vinicius Jr (Real Madrid)
Bernardo Silva (Manchester City)
Luis Diaz (Liverpool)
Robert Lewandowski (Barcelona)
Riyad Mahrez (Manchester City)
Casemiro (Real Madrid)
Heung-Min Son (Tottenham)
Fabinho (Liverpool)
Karim Benzema (Real Madrid)
Mike Maignan (AC Milan)
Harry Kane (Tottenham)
Darwin Nunez (Liverpool)
Phil Foden (Manchester City)
Sadio Mane (Bayern Munich)
Sebastien Haller (Borussia Dortmund)
Luka Modric (Real Madrid)
Antonio Rudiger (Real Madrid)
Cristiano Ronaldo (Manchester United)
Kevin de Bruyne (Manchester City)
Dusan Vlahovic (Juventus)
Virgil van Dijk (Liverpool)
Joao Cancelo (Manchester City)
Erling Haaland (Manchester City)
Kylian Mbappe (Paris Saint-Germain)