Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur verið gagnrýnd undanfarið fyrir skipun sína á Hörpu Þórisdóttur í embætti þjóðminjavarðar. Embættisstaðan hefur ekki verið auglýst í rúmlega tuttugu ár.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við tvo þingmenn stjórnarandstöðunnar, þá Andrés Inga Jónsson frá Pírötum og Jóhann Pál Jóhannsson frá Samfylkingunni. Þeir eru sammála um að þetta sé enn eitt dæmið um misbeitingu valds hjá ríkisstjórninni þegar skipað er í æðstu embætti ríkisins.
„Staða þjóðminjavarðar sýnir svo vel af hverju það skiptir máli að fara faglega að því heldur en að fara þessa hjáleið þar sem það var síðast auglýst í þetta embætti fyrir meira tuttugu árum og landslagið hefur tekið stakkaskiptum varðandi mannauð,“ segir Andrés.
Viðtal við Andrés og Jóhann sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Viðtalið hefst á 3:37.
Hann segir Hörpu vel hæfa til þess að sinna starfinu, en mögulega sé til hæfari einstaklingur sem hefði fundist ef staðan hefði verið auglýst.
Jóhann Páll bendir á það að meirihluti ráðuneytisstjóra hafi verið skipaður án auglýsingar og telur að þjóðin sé farin að klóra sér í kollinum yfir þessum stjórnarháttum ríkisstjórnarinnar.
„Þetta er ekki fyrsta málið og ekki í fyrsta skiptið sem þessi tiltekni ráðherra fer ofboðslega illa með vald sitt þegar kemur að skipan í opinber embætti,“ segir Jóhann en skipanir Lilju hafa áður verið umfjöllunarefni, til dæmis þegar Lilja braut jafnréttislög með ráðningu Páls Magnússonar í embætti ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins.
Jóhann segist vera með frumvarp í smíðum sem tekur á geðþótta- og klíkuráðningum ráðherra. Frumvarpið felur í sér að reistar verði ákveðnar skorður við undanþágum frá auglýsingaskildu.
„Þetta er regla sem felur í sér vörn gegn geðþóttastjórnsýslu, vörn gegn klíkuráðningum og ráðamenn verða að fara ofboðslega varlega með allar undanþágur frá henni,“ segir Jóhann.