Berlusconi sagði Stroppa að stoppa Sindri Sverrisson skrifar 13. september 2022 15:00 Giovanni Stroppa hefur verið rekinn aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa stýrt Monza upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögunni. Getty/Marco Luzzani Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og nú eigandi knattspyrnufélagsins Monza, var ekki lengi að missa þolinmæðina og rak Giovanni Stroppa úr starfi þjálfara liðsins, þó að tímabilið í ítölsku A-deildinni sé svo til nýhafið. Hinn 54 ára gamli Stroppa skráði sig í sögubækurnar með því að koma Monza í fyrsta sinn upp í efstu deild síðastliðið vor, í gegnum umspil. Stroppa fékk hins vegar aðeins að reyna sig í sex leikjum í ítölsku A-deildinni áður en hann var rekinn. Monza fékk aðeins eitt stig úr þessum leikjum, í 1-1 jafnteflinu við aðra nýliða, Lecce, á sunnudaginn. Raffaele Palladino, þjálfari unglingaliðs Monza, tekur við af Stroppa en samkvæmt ítölskum miðlum er það aðeins tímabundið þangað til að Berlusconi finnur nýjan þjálfara. Palladino stýrir Monza þó að minnsta kosti gegn sínu gamla liði Juventus á sunnudaginn. Berlusconi eignaðist Monza árið 2018 þegar liðið var í C-deild. Hann átti áður AC Milan í þrjá áratugi en seldi félagið árið 2017. Stroppa er annar þjálfarinn sem látinn er axla skinn sín í ítölsku A-deildinni þó að tímabilið sé nýlega hafið. Bologna rak Sinisa Mihajlovic í síðustu viku og réði Thiago Motta í hans stað.
Hinn 54 ára gamli Stroppa skráði sig í sögubækurnar með því að koma Monza í fyrsta sinn upp í efstu deild síðastliðið vor, í gegnum umspil. Stroppa fékk hins vegar aðeins að reyna sig í sex leikjum í ítölsku A-deildinni áður en hann var rekinn. Monza fékk aðeins eitt stig úr þessum leikjum, í 1-1 jafnteflinu við aðra nýliða, Lecce, á sunnudaginn. Raffaele Palladino, þjálfari unglingaliðs Monza, tekur við af Stroppa en samkvæmt ítölskum miðlum er það aðeins tímabundið þangað til að Berlusconi finnur nýjan þjálfara. Palladino stýrir Monza þó að minnsta kosti gegn sínu gamla liði Juventus á sunnudaginn. Berlusconi eignaðist Monza árið 2018 þegar liðið var í C-deild. Hann átti áður AC Milan í þrjá áratugi en seldi félagið árið 2017. Stroppa er annar þjálfarinn sem látinn er axla skinn sín í ítölsku A-deildinni þó að tímabilið sé nýlega hafið. Bologna rak Sinisa Mihajlovic í síðustu viku og réði Thiago Motta í hans stað. Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn Fótbolti Mest lesið „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Fótbolti Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Sjá meira