Oliver Giroud kom AC Milan yfir með marki úr vítaspyrnu rétt fyrir leikhlé. Alexis Saelemaekers tvöfaldaði svo forskotið stuttu eftir að síðari hálfleikur hófst.
Mislav Orsic, leikmaður Zagreb, tókst þó að gera leikinn aftur spennandi með marki á 56. mínútu eftir undirbúning Bruno Petkovic. Var þetta annað mark Orsic í Meistaradeildinni en hann skoraði eina markið í sigri liðsins á Chelsea í fyrstu umferð.
Spennan var þó ekki mikill þar sem varamaðurinn Tommaso Pobega gulltryggði sigur Milan með þriðja marki liðsins á 77. mínútu og þar við sat.
Með sigrinum fer Milan á topp E-riðils með fjögur stig á meðan Dinamo Zagreb er með þrjú stig eftir tvær umferðir. Salzburg og Chelsea mætast í hinni viðureign E-riðls síðar í kvöld.
Vegna stríðsins í Úkraínu getur Shaktar Donetsk ekki spilað heimaleiki sína á sínum heimavelli í Donetsk. Þess í stað tók liðið á móti Celtic á Wojska Polskiego vellinum í Varsjá í Póllandi. Gestirnir frá Skotlandi komust yfir strax á 10. mínútu með sjálfsmarki Artem Bondarenko.
Shakhtar jafnaði þó leikinn á 29. mínútu með marki Mykhailo Mudryk en ekki var meira skorað og Shakhtar er því í efsta sæti F-riðls með fjögur stig. Celtic er á sama tíma í þriðja sæti með eitt stig. Real Madrid og RB Leipzig mætast svo síðar í kvöld en eftir leikslok þar verða öll lið búin að leika tvo leiki.