„Samvinna þessara tveggja stórfyrirtækja er einstök og afraksturinn er eitt fullkomnasta rúmið á markaðnum. Ekkert annað rúm á markaðnum getur gert það sama og Ergosportive snjallrúmið,“ segir Steinn Kári Ragnarsson hjá Vogue fyrir heimilið.
Ergomotion er stærsti framleiðandi stillanlegra rúma á heimsvísu og í fremstu röð þegar kemur að snjallvæddum lausnum. Nýstárleg og einstök tenging milli nýja Ergosportive snjallrúmsins og Garmin® Wearable snjallúrsins gerir notandanum kleift að fylgjast með líkamlegu ástandi bæði í vöku og svefni.
Einstakt samspil snjalltækni og svefnrannsókna
Mónica Araújo, markaðsstjóri Ergomotion í Evrópu, sagði í viðtali hér á Vísi í vor að gagnasöfnun væri mikilvæg til að kortleggja heilsuna og ekki síst til að tryggja að dagsformið verði sem best.
„Með því að safna gögnum meðan við sofum yfir hjartslátt, andardrátt, hreyfingar, lengd djúpsvefns, hrotur og fleira fáum við yfirsýn yfir svefnmunstur okkar og getum sett það í samhengi við það sem við gerðum daginn áður,“ sagði Mónica meðal annars og það er einmitt samhengið milli dagsformsins og nætursvefnsins sem þessi nýja, tímamótatenging við Garmin snjallúrin færir okkur.

Í fyrsta sinn fáum við heildaryfirsýn á heilsufarið, tuttugu og fjóra tíma sólarhringsins og getum nýtt upplýsingarnar til að bæta líf okkar og heilsu enn frekar. Snjalltæknin reiknar til dæmis út streitu- og orkustig okkar (e. BodyBattery) meðal annars út frá hjartsláttartíðni, virkni og fleiri þáttum og gefur nætursvefninum einkunn sem hjálpar okkur að setja okkur markmið.

Hrotubani og stillanleg þægindi
Auk snjalleiginleika rúmsins er hægt að stilla það á fjölda mismunandi vegu, hækka og lækka undir höfða- og fótalagi auk þess sem það er búið öflugu nuddi, hrotubana, þyngdarleysisstillingu og ledlýsingu í höfðagafli svo fátt eitt sé nefnt.

Garmin snjallúr fylgja í kaupunum
Í tilefni frumsýningarinnar á rúminu í Vogue fyrir heimilið munu fylgja hverju hjónarúmi tvö Garmin snjallúr að verðmæti 39.900 krónur hvort. Keyptu rúmi fylgir einnig heimsending og uppsetning á rúminu.




