Íslendingaliðin töpuðu stigum í toppbaráttunni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. september 2022 18:26 Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt eru nú 12 stigum á eftir toppliði Molde. EPA-EFE/Mats Torbergsen Íslendingaliðin Bodö/Glimt og Lilleström töpuðu bæði stigum í toppbaráttu norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt gerðu 1-1 jafntefli gegn Haugesund og Hólmbert Aron Friðjónsson og félagar hans í Lilleström máttu þola 3-1 tap gegn Rosenborg.
Alfons var á sínum stað í byrjunarliði Bodö/Glimt er liðið tók á mótu Haugesund. Hann lék rúmlega klukkutíma áður en hann var tekinn af velli, en þá var staðan þegar orðin 1-1 eftir sitthvort markið með stuttu millibili í síðari hálfleik. Norsku meistararnir í Bodö/Glimt sitja nú í fjórða sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 42 stig eftir 23 leiki, 12 stigum á eftir Molde sem trónir á topnnum og á einn leik til góða. Þá kom Hólmbert Aron Friðjónsson inn á sem varamaður fyrir Lilleström þegar um 25 mínútur voru til leiksloka í 3-1 tapi liðsins gegn Rosenborg. Kristall Máni Ingason var ekki í leikmannahópi Rosenborg vegna meiðsla. Rosenborg situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 43 stig, einu stigi minna en Lilleström sem situr í öðru sæti. Að lokum voru Íslendingar í eldlínunni í þremur öðrum leikjum í norska boltanum í dag. Patrik Sigurður Gunnarsson stóð vaktina í marki Viking er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Tromsö, Brynjólfur Darri Willumsson var í byrjunarliði Kristiansund er liðið tapaði 4-1 gegn Stromsgodset og Brynjar Ingi Bjarnason var ónotaður varamaður í 4-0 sigri Vålerenga gegn Sandefjord.
Norski boltinn Mest lesið Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Sport Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Fótbolti Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Körfubolti Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Körfubolti Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Fulham - Chelsea | Mikið í húfi í Lundúnaslag Í beinni: Ipswich - Arsenal | Búnir að stimpla sig út? Í beinni: Man. Utd - Wolves | Tvítugur nýliði byrjar hjá United Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sjá meira