Víðtækt rafmagnsleysi varð í stórum hluta miðbæjar og Vesturbæjar síðdegis í gær.
Þetta olli miklu raski á starfsemi búða og veitingastaða sem lá niðri á meðan rafmagnið var úti.
Þetta er í þriðja skiptið á fáeinum vikum sem rafmagnslaust verður á hluta svæðisins, vegna bilana í strengjum.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kíktum við inn í helstu fráveitustöð miðbæjarins, „hjarta Reykjavíkur“ eins og forstöðumaður Veitna kallar hana, og litum á strenginn sem sló út í gær.
„Það var ansi mikið undir á þessum rofa í gær og hann leysir út vegna bilunar í strengs, sem liggur frá þessari afveitustöð yfir í Pósthússtræti 1. Og það var óvenjulega mikið á þessum rofa í gær því við erum með strengi úti út af verkefnum vestur í bæ sem tengjast þéttingu byggðar,“ segir Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður Rafveitu hjá Veitum.
Til að einfalda; hætta hefur þurft notkun á nokkrum strengjum sem leiða rafmagn í Vesturbæinn vegna byggingaframkvæmda þar, svo ekki skapist hætta fyrir iðnaðarmenn. Þá eykst álagið á aðra strengi og varð það of mikið í gær á strengnum sem leiðir að Pósthússtræti.

Hálfgerð sprenging og húsin hristust
Byggingaframkvæmdir hafa verið helsta orsök rafmagnsleysis hjá Veitum upp á síðkastið.
„Reynslan hefur sýnt okkur það að truflanir verða gjarnan vegna jarðvinnu nálægt strengjum. Hvort sem það eru húsbyggingar eða aðrar framkvæmdir,“ segir Jóhannes.
Eru byggingarverktakar þá að grafa alveg niður að strengnum?
„Það er mismunandi hvernig það verður. Eins og nýlegt dæmi hérna nálægt þessari aðveitustöð, þá var bara grafið í streng. Þá hristust bara húsin í kring, það varð svona hálfgerð sprenging. Svo er bara verið að kroppa í lagnirnar, kannski aðeins verið að rekast í þær og þá yfir tíma gefa þær sig.“
Jóhannes er þó ekki á því að hér sé verið að byggja of mikið of hratt fyrir kerfið.
„Ég myndi ekki segja að það sé endilega vera byggja of mikið en það auðvitað kallar á aukið samstarf og við þurfum að vinna betur saman þvert á til að geta komið í veg fyrir að svona skemmdir verði á lögnum í jörðu.“