James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Hann segir GMC pallbílinn stóran og kraftmikinn. Þveröfugan við þá miklu tækniþróun sem á sér stað í bílabransanum. Bílar eins og Teslur séu að þróast í áttina að tölvum en þetta sé frekar bíll sem keyri yfir Teslur.
Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.
Stór bíll að hætti Bandaríkjamanna
„Það er eitthvað úbersvalt við það að vera á svona risastórum amerískum trukki sem gæti dregið tunglið,“ segir James.
„Díselvélin í honum skilar 450 hestöflum. Hann er svo stór að mér finnst eins og ég sé að keyra um á miðlungstórum fiskitogara. Það er eins og farþeginn í bílnum sé í öðru póstnúmeri.“
James sýnir einnig í þættinum alls kyns aukahluti og eiginleika sem nýtast þeim sem þurfa að nýta hann sem vinnubíl. Því GMC Denali pallbíllinn sé hugsaður sem vinnubíll í Bandaríkjunum og það sé greinilegt að bílasmiðirnir hjá General Motors hafa séð fyrir margar leiðir til að nota bílinn.
Hann segir bílinn samt mjög þægilegan, það sé nánast eins og að vera í La-Z-Boy að keyra um í honum.