Skoðun

Til varnar Há­lendinu í krafti tóna

Tryggvi Felixson skrifar

Hálendi Íslands er í huga okkar stórt, stórbrotið og framandi, en líka heillandi og dásamlegt. Það nær yfir um 40% af landinu okkar. Hálendið heillar marga, jafnvel þá sem ekki hafa haft tækifæri til að ferðast um það og njóta með beinum hætti. Þeir njóta þess úr fjarlægð, af myndum og frásögn. Hálendið er í dag mikilvægur hluti þjóðarvitundar Íslendinga. Hálendinu til heilla boðar Landvernd til hálendishátíðar nk. miðvikudag.

Verðmætasta auðlindin

Hálendi Íslands er afar verðmætt vegna landslags, náttúrufars, vatnafars, gróðurminja, jarðminja og síðast en ekki síst vegna óbyggðra víðerna. Verðmætin liggja ekki síst í því hve fjölbreytnin er mikil og hve fágætt er að finna svo mikla fjölbreytni náttúrufyrirbæra á einu afmörkuðu landsvæði. Hálendið er eina verulega stóra svæðið sunnan heimskautsbaugs í Evrópu þar sem menn hafa aldrei haft búsetu og það er líklega stærsta óbyggða víðerni í Evrópu utan Svalbarða. Að mati Landverndar er Hálendið ein verðmætasta auðlind Íslands, ef ekki sú verðmætasta. Stórum svæðum hefur því miður þegar verið spillt og ýmis áform eru uppi sem myndu valda enn meiri spjöllum. Því er mikilvægt að stíga fram til verndar Hálendinu; á morgun getur það orðið of seint.

Reynslan, bæði hér á landi og víða erlendis, er að ekki býðst betri leið til að vernda víðerni og náttúru ásamt því að tryggja aðgengi almennings og stýra umgengni og nýtingu, en með stofnun þjóðgarðs. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar segir að stofnaður verði þjóðgarður á þegar friðlýstum svæðum og jöklum í þjóðlendum á Hálendinu með breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Þessi áform eiga góðan hljómgrunn hjá þjóðinni. Meirihluti þeirra sem tekur afstöðu í skoðanakönnunum er hlynntur því að vernda Hálendið með stofnun þjóðgarðs.

Hálendisgarður í áföngum

Stjórn Landverndar telur skynsamlegt að ríkisstjórnin vinni að framangreindum áformum með að því að bæta hið fyrsta tveimur heildstæðum svæðum við Vatnajökulsþjóðgarð:

  • Langjökull með Geitlandi, Kerlingafjöll, Hveravellir og svæðið milli jökla, Þjórsárver og Hofsjökull, Guðlaugstungur.
  • Mýrdalsjökull, svæðið á milli Friðlands á Fjallabaki og jökulsins, og Friðlandið að Fjallabaki.

Heppilegast er að þetta verði tvö samfelld svæði; Langjökull-Hofsjökull og svæðið þar á milli og aðliggjandi friðlýst svæði og Mýrdalsjökull-Friðland að fjallabaki og svæðið þar á milli. Þegar þessu lýkur er tímabært að líta til enn fleiri svæða.

Tónlistarveisla fyrir Hálendið

Hálendi Íslands er villtustu víðerni í Evrópu með gljúfrum, gígum, eyðimörkum, frussandi fossum, skínandi jöklum og drynjandi jökulám – en Hálendið er líka kyrrð og blíðar gróðurvinjar. Góður hópur frábærra tónlistarmanna hefur gengið til liðs við Landvernd til varnar þessum verðmætum. Þeir bjóða nú upp á tónlistarveislu til heiðurs Hálendi Íslands og til varnar einstakri náttúru landsins. Listamennirnir eru JFDR, Sóley, Moses Hightower og Snorri Helgason. Of Monsters and Men verða sérstakir gestir. Þessir góðu listamenn og náttúruvinir gefa vinnu sína svo aðgangseyrir rennur til verkefna sem stuðla að verndun Hálendisins.

Höfundur er formaður Landverndar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×