Rosaleg dramatík var í Madrid þar sem Atlético Madrid kastaði frá sér möguleikanum á að komast í 16-liða úrslitin, og Barcelona er einnig úr leik eftir gærdaginn svo að aðeins Real Madrid verður þá enn fulltrúi Spánar í keppninni.
Ljóst er hvaða lið komast upp úr A-, B- og C-riðli en í D-riðli geta enn öll fjögur liðin komist í 16-liða úrslitin, í lokaumferðinni í næstu viku. Tottenham er efst með 8 stig en Sporting og Frankfurt eru með 7 stig og Marseille 6. Marseille tekur á móti Tottenham í lokaumferðinni en Sporting og Frankfurt mætast í Portúgal.
Í A-riðli gerði Liverpool út um vonir Ajax og tryggði sig áfram með 3-0 sigri í Hollandi. Mohamed Salah, Darwin Núnez og Harvey Elliott skoruðu mörkin.
Napoli vann einnig 3-0 gegn Rangers í sama riðli, þar sem Giovanni Simeone skoraði tvö mörk á fyrsta korterinu og Norðmaðurinn Leo Skiri Östigård innsiglaði sigurinn. Þar með endar Napoli fyrir ofan Liverpool nema að Liverpool takist að vinna fjögurra marka sigur gegn Napoli á Anfield í lokaumferðinni.
Club Brugge og Porto fara áfram úr B-riðli en Atlético Madrid og Leverkusen berjast um 3. sætið og að komast þannig í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.
Brugge tapaði sínum fyrsta leik í gærkvöld þegar liðið steinlá á heimavelli gegn Porto, 4-0, þar sem Íraninn Mehdi Taremi skoraði tvö mörk.
Atlético Madrid og Leverkusen gerðu 2-2 jafntefli en þar ætlaði allt um koll að keyra í leikslok. Dómarinn hafði flautað af en skoðaði svo atvik á myndbandi og dæmdi hendi og víti á Leverkusen. Finninn Lukas Hradecky varði hins vegar vítaspyrnu Yannick Carrasco, Saúl átti svo skalla í þverslána og skot Reinildi náði ekki að marki.
Í C-riðli tryggði Inter sér 2. sæti með öruggum 4-0 sigri gegn Plzen og Barcelona var því úr leik áður en liðið mætti Bayern á Camp Nou og tapaði 3-0.
Henrikh Mkhitaryan, Edin Dzeko (2) og Romelu Lukaku skoruðu mörk Inter en Sadio Mané, Eric Maxim Choupo-Moting og Benjamin Pavard fyrir Bayern.
Í D-riðli gerðu Tottenham og Sporting 1-1 jafntefli í Lundúnum þar sem mark var dæmt af Harry Kane í uppbótartíma vegna rangstöðu, eftir myndbandsskoðun. Antonio Conte, stjóri Tottenham, fékk rautt spjald vegna mótmæla. Marcus Edwards hafði komið Sporting yfir en Rodrigo Bentancur jafnað á 80. mínútu.
Frankfurt vann svo 2-1 sigur gegn Marseille í Þýskalandi þar sem öll mörkin komu á fyrsta hálftíma leiksins.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.