Á öllum þeim fundum ýjaði hann hinsvegar sterklega að því að hann myndi brátt lýsa því yfir að hann ætli að bjóða sig fram til forseta árið 2024. Á dögunum sagði hann að von væri á yfirlýsingu á fjöldafundinum í Ohio sem fram fór í gær.
Á endanum varð þó ekkert úr því að hann lýsti yfir framboði en hann boðaði þó „mjög stóra tilkynningu“ þann 15. nóvember næstkomandi. Þá ætlar hann að halda einhverskonar samkomu á heimaslóðum í Mar-a-Lago í Flórída og búast flestir við því að hann lýsi þar yfir framboði.
Í gærkvöldi sagði hann stuðningsmönnum sínum að ef þeir vildu stöðva „eyðileggingu landsins okkar“, þá verði þeir að kjósa Repúblikana.
Flokkur Trumps þarf aðeins fimm ný sæti í fulltrúadeildinni til að ná þar völdum og aðeins eitt í öldungadeildinni.
Fastlega er búist við því að það takist í fulltrúadeildinni og raunar gott betur, því flokknum er spáð 15 til 25 sætum til viðbótar við það sem hann hefur nú. Í öldungadeildinni er baráttan hinsvegar afar tvísýn og stjórnmálaskýrendur treysta sér ekki til að spá fyrir um á hvern veginn sú orrusta fer.