Skoðun

Að styðja við for­eldra/for­ráða­menn í sorg þá erum við að styðja börnin

Karólína Helga Símonardóttir skrifar

Í byrjun sumars á þessu ári var brotið blað í stuðningi við syrgjendur þegar frumvarp um sorgarleyfi foreldra varð að lögum. Lögin tryggja foreldrum, sem missa barn sitt, leyfi frá störfum og greiðslur sem koma til móts við tekjutap. Hingað til hefur það verið undir vinnuveitanda komið hvort foreldri fái launað leyfi eftir barnsmissi.

Sorgarmiðstöð hvatti ríkisstjórnina, velferðarnefnd og alþingsimenn til að hefja hið fyrsta undirbúning að næsta skrefi: Frumvarpi til breytinga á lögunum, með það að markmiði að færa einstaklingum sem missa maka frá ungum börnum, sambærilega réttarbót. Ungt fólk sem missir maka sinn snemma á lífsleiðinni frá ungum börnum, er sá hópur sem sérstaklega þarf að huga að. Í umsögn Sorgarmiðstöðvar um sorgarleyfið þá lögðum við mikla áherslu á að það þyrfti líka að mæta þessum. Þau félög sem sendu inn umsögn um frumvarpið voru á sama máli.

Ungt fólk sem missir maka snemma á lífsleiðinni og er með börn á framfæri verður ekki aðeins fyrir mikilli sorg, heldur líka miklu tekjutapi. Í flestum tilfellum eru það báðir aðilar sem hafa verið fyrirvinnur heimilisins. Í sorginni þarf að sinna börnunum, ásamt því að eftirlifandi maki reynir að sinna sinni eigin sorg og finna úrlausnir á þeirri fjárhagslegu stöðu sem komin er upp.

Við þekkjum það af reynslu að þetta er sá hópur sem dettur hvað líklegast út af vinnumarkaðinum nokkrum árum eftir makamissinn, því þau höfðu ekki nægt svigrúm eða tækifæri til þess að takast á við sorgina sína, allt þeirra fór í að styðja börnin og halda hversdagslífinu gangandi.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, svaraði ákallinu og lagði nýverið fram frumvarp á Alþingi um sorgarleyfi vegna makamissis. Frumvarp þetta er út­víkkun á lögum sem sam­þykkt voru í sumar, um sorgar­leyfi í kjöl­far barnsmissis. Megin tilgangurinn með útvíkkuninni er að fókus­punkturinn sé á börnin og að taka utan um og styðja um þær fjöl­skyldur þar sem móðir eða faðir deyr frá börnum sínum. Við fögnum þessu mikilvægu skrefum í réttindabaráttu syrgjenda. Vonum að ríkistjórnin og ráðamenn þjóðarinnar samþykki þessa breytingu.

Markmið og starf Sorgarmiðstöðvar er að styðja syrgjendur og alla þá sem vinna að velferð þeirra með fræðslu og ráðgjöf. Sorgarmiðstöð er öllum opin.

Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar.

Höfundur er stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×