Þetta kemur fram í svörum landlæknisembættisins við fyrirspurn fréttastofu.
Með nýjum lögum um líffæragjafir varð sú breyting á að allir landsmenn eru sjálfkrafa skráðir líffæragjafar en gefst kostur á því að hafna líffæragjöf í gegnum Heilsuveru. Þar er einnig hægt að velja að gefa bara ákveðin líffæri eða gefa ekki ákveðin líffæri.
Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum um það hvaða líffæri það væru sem fólk vildi helst ekki gefa en fékk þau svör að sú tölfræði væri ekki á reiðum höndum, þar sem séróskir eru tilgreindar í textareit.
„Hins vegar má segja að mikill meirihluti þeirra sem velur líffæragjöf að hluta vill ekki að líffæri fyrir ofan axlir séu nýtt. Algengt er að fólk tilgreini sérstaklega augu og varir í þessum efnum,“ segir í svörum landlæknisembættisins.
Frá og með árinu 2016 hafa 143 líffæri verið grædd í íslenska sjúklinga.
Um er að ræða 100 nýru, 41 úr lifandi gjöfum og 59 úr látnum gjöfum, 29 lifrar, tíu hjörtu, þrjú lungu og eitt bris.