Walliams er í Smáralind á vegum Pennans Eymundssonar. Hann mætti þangað klukkan eitt í dag og verður til klukkan hálf þrjú. Þar áritar hann bækur sínar fyrir gesti og gangandi.
Samkvæmt fólki á staðnum var fólk sem mætti klukkan tólf í röðina að fá áritun stuttu fyrir klukkan tvö. Því er ljóst að ekki allir í röðinni munu ná að hitta hann.
Áhugi fólks er gríðarlega mikill en nokkur hundruð manna bíða nú í röð fyrir utan verslunina til að fá áritunina. Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindarinnar, segir að þrátt fyrir að fólkið í röðinni sé mjög spennt sé almenn ró yfir öllum.
„Það virðist vera mikill spenningur og hér er mikið af fólki með börnin sín. Allir eru rólegir í röðinni. Sumir eru með bækur að heiman sem þeir ætla að láta að árita,“ segir Sandra.
Það er langt síðan svo löng röð myndaðist í verslunarmiðstöðinni. Að sögn Söndru var það líklega þegar verslun H&M var opnuð þar árið 2017. Fyrir það var það síðan þegar verslun Lindex var opnuð árið 2011.
Enginn troðningur hefur myndast ólíkt því þegar Vine-stjörnurnar Jerome Jarre og Nash Grier heimsóttu Smáralind í janúar árið 2014. Þá myndaðist mikill troðningur og einhver börn slösuðust. Það endaði með því að það þurfti að fylgja stjörnunum út um starfsmannaútgang.