Bilunin sem Leno var að glíma við var stífla í eldsneytiskerfi bílsins. Hún brast og sprautaðist eldsneyti yfir andlit Leno. Á sama tíma komst neisti í vökvann sem kveikti í honum og brenndi grínistann. Að sögn Leno var Dave vinur hans viðstaddur og gat stokkið á hann og slökkt í honum.
Leno hefur sankað að sér um 180 bílum og 160 mótorhjólum. Á YouTube rás hans má sjá umfjöllun um fjöldann allan af þessum farartækjum. Hér má sjá níu ára gamalt myndband þar sem Leno sýnir umræddan gufuknúna bíl.
Fyrrum þáttastjórnandinn er með þriðja stigs bruna á andliti og gæti þurft á skinnágræðslu að halda. Heppnin var með Leno að því leyti að eldurinn komst ekki í augu hans né eyru. Hann var fluttur með sjúkrabíl á spítala þar sem hann mun vera í fimm til tíu daga.