Rímnaflæði, rappkeppni unga fólksins á aldrinum 13-16 ára er stökkpallur fyrir unga rappara var fyrst haldin árið 1999 í Miðbergi. Síðustu tvö ár var viðburðurinn haldinn á netinu og segir í tilkynningu að mjög gaman hafi verið að geta loksins haldið þennan viðbuðrinn aftur með keppendur og áhorfendur á staðnum í Fellahelli.
„Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu. Það er ljóst að framtíðin í rappinu er björt og eru margir efnilegir rapparar að taka sín fyrstu skref.“
Dómnefndina skipuðu þau Ragna Kjartansdóttir, Ragnhildur Holm og Árni Matthíasson. Plötusnúðarnir Patrekur og Hilmar „Einn og hálfur Dj" úr félagsmiðstöðinni Sigyn spiluðu í upphafi viðburðar.
Einnig komu fram Ragnheiður Inga Matthíasdóttir (Ragga Rix) sigurvegari Rímnaflæði 2021, Jónas Víkingur (Johnny Boy) sigurvegari Rímnaflæði 2020, Daniil, Issi og Ízleifur.
Að neðan má sjá myndband frá Rímnaflæði 2021.