Borgarstjórnarmeirihlutinn kynnti 92 hagræðingaraðgerðir til þess að bregðast við miklum hallarekstri A-hluta Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Rekstur A-hlutans var neikvæður um rúmlega ellefu milljarða króna fyrstu níu mánuði ársins, langt umfram þann 1,6 milljarða króna halla sem reiknað hafði verið með.
Á meðal hagræðingaraðgerðanna er draga úr fjárfestingum upp á fimm milljarða á næstu árum, lækka fundarkostnað borgarstjórnar, fresta ráðningum á skrifstofu borgarstjóra og borgarrita, fækka listsýningum og bjóða út mat fyrir leikskóla borgarinnar.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi áformin í gær. „Kroppað“ væri í reksturinn hér og þar en aðgerðirnar væru mátt- og haglausar. Skera ætti niður útgjöld til matarkaupa fyrir leikskólabörn um hundrað milljónir króna en lítið gert til þess að hrófla við fínum móttökum í Höfða og ráðhúsinu.
„Ráðist beint í að skerða þjónustu við fólkið í borginni í stað þess að ráðast á yfirbygginguna og rekstrarvandann í þessari stjórnsýslu,“ sagði Hildur í viðtali við Stöð 2 í gær.
Popúlismi að leggja til lækkun launa þeirra hæst launuðu
Einar sagði þessar kveðjur Hildar kaldar í ljósi þess að hagræðingaraðgerðirnar væru þær mestu frá hruni í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Gerð væri hagræðingarkrafa um eitt prósent á öll svið auks þess að reksturinn yrði ekki verðbættur.
Sú hagræðingarkrafa ofan á aðgerðirnar 92 og ýmsar umbótaáætlarnir sem ráðist yrði í ættu að skila um fimmtán milljarða króna hagræðingu yfir þriggja ára tímabil. Hagræðingin næði jafnmikið til miðlægrar stjórnsýslu inni í ráðhúsinu og til annarra hluta borgarkerfisins.
„Stóri vandinn er þessi og heildarsýnin verður að vera þessi, við erum með 15,3 milljarðahalla á rekstri A-sjóðs og við verðum að bæta undirliggjandi rekstur borgarinnar. Það gerum við með því að fara í margháttaðar aðgerðir inn í kerfið, hagræðum inni í kerfinu en reynum að koma í veg fyrir að það bitni á borgarbúum. Við stöndum vörð um framlínuþjónustuna, skólana og velferðarþjónustuna. Þannig getum við bætt þjónustuna,“ sagði hann.
Spurður að því hvort að hæst launuðu borgarstarfsmennirnir, þar á meðal borgarfulltrúar, væru tilbúnir að taka á sig skerðingu sagðist Einar þeirrar skoðunar að kjörnir fulltrúar ættu ekki að hræra í laununum sínum sjálfir.
„Þetta er bara popúlismi að koma með einhverjar svona tillögur,“ svaraði hann.
Hvað varðaði útboð á mat til leikskóla borgarinnar sagði Einar það koma sér á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn legðist gegn því. Nú þegar hefðu 47 af 63 leikskólum borgarinnar ákveðið sjálfir að bjóða út matinn í staðinn fyrir að vera sjálfir með eldhús. Sagði Einar það skynsamlega fjármálastjórn að ráðast í sameiginleg innkaup fyrir leikskólana.