Vísir birtir nú annan bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda (Fibut) og greina má ýmsar hrókeringar, þó kóngurinn sé fastur fyrir. Ólafur Jóhann Ólafsson hefur verið á góðu flugi allan nóvember með bók sína, Játningu og situr í þriðja sæti skáldverkalistans þar sem hann skákar glæpasagnadrottningunni Yrsu Sigurðardóttur aðra vikuna í röð.
Í raun er Ólafur Jóhann sá eini sem eitthvað truflar glæpasagnahöfundana sem leggja undir sig efstu sæti bóksölulistans. Og vandséð er að sjá hvort og þá hvernig áhrif kynning á tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans í síðustu viku hafi áhrif á bóksöluna, eins og þeim þó er ætlað. Bók Yrsu, Gættu þinna handa situr í fjórða sæti skáldverkalistans en að henni sækir Hungur Stefáns Mána sem hefur verið í stórsókn að undanförnu, að sögn Bryndísar Loftsdóttur hjá Fíbút, sérfræðingi Vísis í bóksölunni.
„Fyrir utan Ólaf Jóhann, þá held ég að við eigum enn eftir að sjá nokkrar breytingar á skáldverkalistanum, salan er enn að taka á sig mynd. Þetta er óhemju sterkt skáldverkaár, kanónur og vonarstjörnur í bland. Af þeim síðast töldu virðist Haukur Már Helgason líklegastur í augnablikinu til þess að bregða sér í líki svarta folans með bók sína, Tugthúsið,“ segir Bryndís.
Aðrir minna þekktir höfundar sem hugsanlega gætu blandað sér í þann slag eru Skúli Sigurðsson með glæpasöguna Stóri bróðir sem tilnefnd var til Blóðdropans í síðustu viku. Einnig Pedro Gunnlaugur Garcia með bók sína, Lungu, sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á dögunum.
„Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir verða aðra vikuna í röð að sætta sig við annað sæti listans með Reykjavík glæpasaga. Þau skortir enn nokkuð á sölu til þess að fanga toppsætið en eru þó nær því en í síðustu viku.“
Að sögn Bryndísar er hart sótt að Arnaldi Indriðasyni þetta árið.
„líkt og undanfarna ríflega tvo áratugi lætur hann öðrum eftir að fylla fjölmiðla og gerir nákvæmlega ekkert til að hvetja lesendur til að kaupa bækur sínar nema þetta, sem öllu máli skiptir, að senda árlega frá sér skáldverk í hæsta gæðaflokki. Titill nýjustu bókar hans, Kyrrþey, hlýtur að hafa staðið honum nærri hjarta,“ segir Bryndís.
Mest seldu bækurnar 28. nóv. - 4. des. 2022
Skáldverk
1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason
2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson
4. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir
5. Hungur - Stefán Máni
6. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir
7 Hamingja þessa heims – Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
8. Saknaðarilmur - Elísabet Jökulsdóttir
9. Guli kafbáturinn - Jón Kalman Stefánsson
10. Strákar sem meiða - Eva Björg Ægisdóttir
11. Tugthúsið - Haukur Már Helgason
12. Útsýni - Guðrún Eva Mínervudóttir
13. Veðurteppt um jólin - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
14. Fjällbacka-serían : Gauksunginn - Camilla Läckberg, þýð. Sigríður Eyþórsdóttir og Sigurður Þór Salvarsson
15. Opið haf - Einar Kárason
16. Tól - Kristín Eiríksdóttir
17. Drepsvart hraun - Lilja Sigurðardóttir
18. Jól í Litlu bókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
19. Stóri bróðir - Skúli Sigurðsson
20. Stundum verða stökur til - Hjálmar Jónsson
Ævisögur, fræði- og handbækur
1. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson
2. Guðni – Flói bernsku minnar - Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson
3. Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
4. Bréfin hennar mömmu - Ólafur Ragnar Grímsson
5. Glaðasti hundur í heimi - Biblía hundaeigandans - Heiðrún Villa
6. Tarot-bókin - Handbók og falleg tarot-spil - Claire Goodchild, þýð. Hafsteinn Thorarensen
7. Spítalastelpan - Hversdagshetjan Vinsý - Sigmundur Ernir Rúnarsson
8. Prjónað á börnin af enn meiri ást - Lene Holme Samsøe, myndh. Katrine Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
9. Hetjurnar á HM - Illugi Jökulsson
10. Bakað meira með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgesdóttir
11. Fimmaurabrandarar 4 - Endursögn: Fimmaurabrandara- fjelagið
12. Strand í gini gígsins - Surtseyjargosið og mannlífið í Eyjum - Ásmundur Friðriksson
13. Húðbókin - Lára G. Sigurðardóttir og Sólveig Eiríksdóttir, myndh. Hildur Ársælsdóttir
14. Tíminn minn 2023 - Björg Þórhallsdóttir
15. Sjöl og teppi, eins báðum megin - Auður Björt Skúladóttir, myndh. Auður Björt Skúladóttir og Christine Einarsson
16. Hjarta Íslands – Frá Hrísey til Fagradalsfjalls - Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson
17. Heimabarinn - Sérútgáfa - Andri Davíð Pétursson og Ivan Svanur Corvasce
18. Stiklur um undur Íslands - Ómar Ragnarsson, myndh. Friðþjófur Helgason
19. Ameríska goðsögnin - Saga Harley-Davidson mótorhjóla á Íslandi - Njáll Gunnlaugsson
20. Allt í blóma - Pottablómarækt við íslenskar aðstæður - Hafsteinn Hafliðason
Barna- og unglingabækur
1. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian
2. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
3. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
4. Orri óstöðvandi- Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson
5. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
6. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
7. Jólaföndur - rauð - Höfundar og þýðanda ekki getið
8. Lára fer á skíði - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
9. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason
10. Salka - Tímaflakkið - Bjarni Fritzson
11. Leikum með sveinka - Höfundar og þýðanda ekki getið
12. Drengurinn með ljáinn - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Sigurjón Líndal Benediktsson
13. Skólaslit - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
14. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónsson og Anna M. Marinósdóttir, myndh. Jón B. Hlíðberg
15. Dagbók Kidda klaufa 16 - Meistarinn - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
16. Gurra Grís - Gurra góða nótt - Mark Baker, þýð. Klara Helgadóttir
17. Litlu börnin læra orðin - Rhea Gaughan, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
18. Jólasyrpa 2022 - Walt Disney
19. Risaeðlugengið - Fjársjóðsleitin - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer, þýð. Æsa Guðrún Bjarnadóttir og Sverrir Jakobsson
20. Bóbó bangsi og jólin - Jólasaga með flipa til að opna! - Hartmut Bieber, þýð. Kolbeinn Þorsteinsson
Mest seldu bækurnar í öllum flokkum 28. nóv – 4. des 2022
1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason
2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson
4. Gættu þinnahanda - Yrsa Sigurðardóttir
5. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson
6. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian
7. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
8. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
9. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson
10. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
11. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
12. Hungur - Stefán Máni
13. Jólaföndur - Höfundar og þýðanda ekki getið
14. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir
15. Guðni – Flói bernsku minnar - Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson
16. Lára fer á skíði - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
17. Hamingja þessa heims - Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
18. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason
19. Salka - Tímaflakkið - Bjarni Fritzson
20. Leikum með sveinka - Höfundar og þýðanda ekki getið
Mest seldu bækur ársins, frá 1. janúar til 4. desember
1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason
2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
3. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
4. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson
5. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir
6. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian
7. Hanni granni dansari - Gunnar Helgason
8. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson
9. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson
10. Natríumklóríð - Jussi Adler-Olsen, þýð. Jón St. Kristjánsson
11. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
12. Skólaslit - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
13. Leyndarmálið - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
14. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
15. Hva - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
16. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
17. Dagbók Kidda klaufa 16 - Meistarinn - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
18. Liðin tíð - Lee Child, þýð. Bjarni Gunnarsson
19. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónsson og Anna M. Marinósdóttir, myndh. Jón B. Hlíðberg
20. Jólaföndur - Höfundar og þýðanda ekki getið