Í þjóðhagsráði sitja ásamt formönnum stjórnarflokkanna í ríkisstjórn og fulltrúar nokkurra stéttarfélaga, Samtaka atvinnulífsins og seðlabankans. Bjarni segir útspil stjórnvalda til að liðka fyrir kjarasamningum til umræðu á þeim vettvangi.
„Í þessari lotu erum við í ríkisstjórninni mikið að horfa til þeirra sem eru á lægri endanum. Við höfum rætt barnabætur, húsnæðismál, húsnæðiskostnað þeirra sem eru með minna á milli handanna. Það þarf að auka framboð á húsnæði svo húsnæðisliðurinn hætti að valda auknum þrýstingi á verðhækkanir í landinu. Ég held að með sameiginlegu átaki sé þetta allt saman viðráðanlegt.“
Rætt er við fjármálaráðherra hér að neðan.
Hann segist fullviss um að stjórnvöld geti skilað sínu í þeim efnum.
„Útfærslan er eitthvað sem við erum tilbúin að hlusta eftir hugmyndum um.“
Takist að ná tökum á verðbólgunni sé hægt að sækja frekari lífskjarabætur. Hann segist því sýna því ákveðinn skilning að nú sé verið að landa kjarasamningum til skamms tíma og bindur vonir við að nýgerður samningur Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins verði til þess að ryðja brautina fyrir aðra og telur raunar niðurstöðuna góða fyrir alla aðila.
„Mér sýnist að það séu töluverðar kjarabætur í þessum samningi sömuleiðis og ánægjulegt að tekist hafi samkomulag við Samtök atvinnulífsins um þessa niðurstöðu, þó að hún sé til skamms tíma. Maður verður að sýna því skilning að vegna ákveðinnar óvissu, meðal annars vegna verðbólgunnar, að menn vilji semja til skemmri tíma. Þetta ryður vonandi brautina fyrir aðra sem kunna að koma í kjölfarið. Það er það sem maður bindur vonir við.“