Tollar á frönskum kartöflum stóðu lengi í 76 prósentum, sem var allra hæsti prósentutollur á innfluttri vöru í Íslandssögunni.
Tollurinn gegndi því hlutverki að vernda innlenda framleiðslu á frönskum kartöflum, sem lagðist af fyrir nokkru og hefur Félag atvinnurekenda barist fyrir því upp á síðkastið að fá tollinn lækkaðan.
Það tókst nú fyrir helgi þegar Alþingi samþykkti að lækka tollinn úr 76 prósentum í 46 prósent.
„Eftir sem áður er það Íslandsmet í tollheimtu og mjög áhugavert því við höfum aldrei fengið neina góða skýringu á því hvers vegna hæsti tollurinn í tollskránni þarf að vera á vöru sem er ekki framleidd á Íslandi og verndar þar af leiðandi ekki neitt,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ekki lægra verð
Þetta hafi engin áhrif á verðið því þegar hafi verið 46 prósenta tollur á frönskum í fríverslunarsamningum Íslands við Kanada og Evrópusambandið. Því koma nánast allar franskar kartöflur í verslunum landsins þaðan.
„Þannig að líklegustu áhrifin af þessari breytingu eru að innflutningur á frönskum kartöflum frá Bandaríkjunum mun aukast. Þar eru vissulega mörg góð vörumerki í boði. Þannig þetta þýðir kannski fyrst og fremst meiri fjölbreytni í vöruúrvali en fyrir buddu neytandans þá skiptir þetta litlu máli,“ segir Ólafur.
Hann á erfitt með að átta sig á því hvers vegna svo erfitt sé að lækka toll á þessari tilteknu vöru - ein skýringin sé mögulega að þetta sé spil sem stjórnvöld geti spilað út í fríverslunarsamningum í framtíðinni. Það sé afar slæmt að íslenskir neytendur þurfi að gjalda fyrir það í millitíðinni.
„Við fögnum öllum litlum sigrum í tollamálum að sjálfsögðu. Ég ætla að hafa steik og franskar í kvöld,“ segir Ólafur.