Barcelona slapp með skrekkinn gegn liði úr þriðju deild Smári Jökull Jónsson skrifar 4. janúar 2023 22:46 Ansu Fati fagnar hér sigurmarki sínu í kvöld. Vísir/Getty Barcelona slapp heldur betur með skrekkinn í spænska bikarnum í kvöld þegar liðið mætti þriðjudeildar liðinu CF Intercity. Börsungar unnu 4-3 eftir framlengingu og er því komið áfram.
Það voru ekki margir sem bjuggust við því að CF Intercity yrði mikil fyrirstaða fyrir stórlið Barcelona í kvöld en Intercity leikur í þriðju efstu deild á Spáni. Barcelona hvíldi nokkra af sínum lykilmönnum og stuðningsmenn hugsuðu sér eflaust gott til glóðarinnar þegar Ronald Araujo kom liðinu í 1-0 strax á fyrstu mínútu. Staðan í hálfleik var 1-0 en síðari hálfleikur átti heldur betur eftir að verða fjörugur. Heimamenn jöfnuðu á 59.mínútu með marki Oriol Soldevila en átta mínútum síðar kom Ousmane Dembele Barcelona yfir á ný. Aftur jafnaði Soldevila fyrir lið Intercity en varamaðurinn Raphinha kom Barca yfir í þriðja sinn á 77.mínútu. Þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fullkomnaði Soldevila þrennu sína og því varð að framlengja leikinn. Í framlengingunni var aðeins eitt mark skorað. Ansu Fati, sem einnig hafði komið inn sem varamaður, skoraði undir lok fyrri hluta framlengingarinnar og tryggði Barcelona sæti í 16-liða úrslitum Copa Del Rey. Fyrr í kvöld tryggði Atletico Madrid sér sæti í næstu umferð þegar liðið lagði Real Oviedo 2-0 á útivelli með mörkum frá Marcos Llorente og Pablo Barrios Rivas.
Spænski boltinn Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Real Madrid - Athletic Bilbao | Erfitt verkefni bíður Madrídinga Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Sjá meira