Smíða áttæring forfeðranna úr sunnlenskum skógarvið Kristján Már Unnarsson skrifar 19. janúar 2023 11:05 Hafliði Már Aðalsteinsson, bátasmiður úr Hvallátrum á Breiðafirði. Arnar Halldórsson Meira en öld eftir að Íslendingar hættu almennt að róa til fiskjar á áttæringum eru menn aftur teknir til við að smíða slíkt skip, og það úr íslenskum skógarvið. Tilgangurinn er að halda upp á menningararfinn.
Í fréttum Stöðvar 2 var litið inn í skemmu í eigu Faxaflóahafna í Korngörðum í Sundahöfn. Þar vinnur Breiðfirðingurinn Hafliði Már Aðalsteinsson við þriðja mann við að gera upp gamla trébáta. En núna eru þeir að smíða fornbát, svokallaðan áttæring, sem menn réru á fyrir tíma vélbátanna. „Þú verður að athuga það að þessir bátar eru grundvöllur að útgerð nútímans. Afar þeirra sem gera út núna gerðu út svona báta. Þetta er bara hluti af menningunni okkar og sögunni okkar,“ segir Hafliði. Báturinn er smíðaður eftir teikningu úr bókaflokknum Íslenskum sjávarháttum.Arnar Halldórsson Þessi verður ellefu metra langur, á stærð við teinæring en samt áttæringur, smíðaður eftir teikningu úr Íslenskum sjávarháttum. Áhugamenn í Grindavík undir forystu Ólafs Sigurðssonar skipstjóra ásamt Sjómannafélaginu í Grindavík standa fyrir smíðinni. „Það var enginn svona til. Það var búið að henda þeim öllum. Við erum duglegir að brenna þetta á gamlárskvöld. Áttæringar voru ekkert margir. En svo voru sexæringar, það voru bátar sem þeir notuðu mest í sjóróðrana. Áttæringana í hákarlalegurnar og svoleiðis eitthvað stærra, og svo í flutninga. En fiskimenn, eins og þeir voru undir Jökli, þeir réðu ekkert við stærri báta en sexæringa. Það þurfti að draga þetta upp alltaf undan sjó. Það voru engar hafnir. Svona stórir bátar voru yfirleitt ekki notaðir til fiskjar, ekki í Breiðafirðinum allavega. En þeir notuðu stóra báta hérna austur á söndum. Þar voru þeir með stóra báta.“ Bátasmíðin fer fram í skemmu Faxaflóahafna í Sundahöfn í Reykjavík.Arnar Halldórsson Hafliði er sjöundi ættliður bátasmiða, lærði skipasmíðar af föður sínum í Hvallátrum á Breiðafirði, og þar smíðuðu menn síðast svona bát árið 1904 eða 1906. Þó ekki úr íslenskum við. „Forfeður okkar notuðu rekavið í þetta. Núna er hann hættur að koma. Þá notum við íslenskt.“ Þannig eru böndin og kjölurinn úr sunnlenskum skógi, íslenskt greni úr Þjórsárdal. „Þetta eru máttarviðirnir. Eins og kjölurinn, rúmlega sjö metra langur. Þannig að það eru orðin sæmileg tré til.“ -Þannig að það er hægt að treysta íslenskum skógum fyrir bátum? „Já, já, já. Við getum gert það,“ svarar skipasmíðameistarinn. Finnsk fura fer þó í byrðinginn en möstrin tvö eru íslenskt lerki. Kjölurinn og böndin eru úr íslenskum skógi.Arnar Halldórsson En hafa menn áður smíðað bát úr íslenskum skógarviði? „Ekki svo að ég viti.“ -Heldurðu að landnámsmenn hafi gert það? „Jaa.. Hvernig voru skógarnir hérna þá? Voru þeir háir? Eins og það sem við þekkjum af þessu er óttalegt kjarr og hefur varla verið mikið nothæft í smíðar, - ekki í báta. En við vitum að fjörurnar voru fullar af við, væntanlega frá Síberíu.“ -En hvenær á svo að sjósetja? „Sjómannadaginn.“ -Við hátíðlega athöfn í Grindavík? „Það geri ég ráð fyrir, já. Það er þeirra hlutur. Ég ætla bara að vera við,“ svarar Hafliði Már Aðalsteinsson, bátasmiður úr Hvallátrum á Breiðafirði. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Fornminjar Grindavík Sjávarútvegur Skeiða- og Gnúpverjahreppur Skógrækt og landgræðsla Tengdar fréttir Skógariðnaður vex upp af trjánum í Heiðmörk Sjötíu árum eftir að fyrstu trén voru gróðursett í Heiðmörk er svæðið farið að gefa af sér umtalsverðar skógarnytjar. Borðviður, veggklæðningar og gólffjalir eru meðal afurða sem verða til í sögunarmyllu Skógræktarfélags Reykjavíkur. 7. nóvember 2022 21:21 Drottning Vestfjarða í söluferli Hin sögufræga eyja Vigur er kominn í söluferli. Bóndinn ætlar að bregða búi en hann hefur búið þar í rúm 40 ár. Súðavíkurhreppur gæti átt forkaupsrétt en sveitarstjórinn þar segir eyjuna fallegasta stað Vestfjarða og er af nægu að taka. 5. júní 2018 06:00 Byggðasafnið græðir á fjölgun ferðamanna Vaxandi ferðamannastraumur hefur reynst happafengur fyrir menningarstofnanir víða um land. Þannig er Byggðasafnið á Skógum farið að skila tugmilljóna hagnaði 20. apríl 2014 20:30 Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00 Stétt skógarhöggsmanna fer stækkandi á Íslandi Vaxandi skógariðnaður á Íslandi gefur færi á milljarða gjaldeyrissparnaði þjóðarbúsins, að mati skógræktarmanna. 4. febrúar 2014 17:00 Mest lesið Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Erlent Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum Innlent Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Erlent „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Innlent Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Innlent Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi Innlent Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Innlent „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Innlent Fleiri fréttir Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Gæsluvarðhald framlengt yfir konunni Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Annað veiðifélag rannsakað vegna ólöglegs fiskeldis Breskur dómur grafi undan tilverurétti trans fólks Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Rekstur hestaleigu stöðvaður Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Örtröð í Leifsstöð og umdeildur hæstaréttardómur í Bretlandi Yngstu börnin sem hefja innritun í haust fjórtán mánaða Sjá meira
Skógariðnaður vex upp af trjánum í Heiðmörk Sjötíu árum eftir að fyrstu trén voru gróðursett í Heiðmörk er svæðið farið að gefa af sér umtalsverðar skógarnytjar. Borðviður, veggklæðningar og gólffjalir eru meðal afurða sem verða til í sögunarmyllu Skógræktarfélags Reykjavíkur. 7. nóvember 2022 21:21
Drottning Vestfjarða í söluferli Hin sögufræga eyja Vigur er kominn í söluferli. Bóndinn ætlar að bregða búi en hann hefur búið þar í rúm 40 ár. Súðavíkurhreppur gæti átt forkaupsrétt en sveitarstjórinn þar segir eyjuna fallegasta stað Vestfjarða og er af nægu að taka. 5. júní 2018 06:00
Byggðasafnið græðir á fjölgun ferðamanna Vaxandi ferðamannastraumur hefur reynst happafengur fyrir menningarstofnanir víða um land. Þannig er Byggðasafnið á Skógum farið að skila tugmilljóna hagnaði 20. apríl 2014 20:30
Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00
Stétt skógarhöggsmanna fer stækkandi á Íslandi Vaxandi skógariðnaður á Íslandi gefur færi á milljarða gjaldeyrissparnaði þjóðarbúsins, að mati skógræktarmanna. 4. febrúar 2014 17:00