Ekki er allt sem sýnist Fjármálaráðherra fullyrti nýverið úr ræðustól Alþingis að verðmyndun á fiski á Íslandi væri ákveðin með sýndarviðskiptum innan sjávarútvegsfyrirtækjanna. Þessi fullyrðing er röng og eingöngu til þess fallin að villa almenningi sýn. Skoðun 28.3.2025 13:30
„Þetta er afnotagjald“ Fjármála- og efnahagsráðherra segir breytingu á veiðigjöldum ekki vera skattlagningu heldur afnotagjald af auðlindum. Tillaga ráðherra hefur hlotið mikla gagnrýni, þá helst frá kvótaeigendum, á meðan merkja má ánægju víða í samfélaginu. Viðskipti innlent 28.3.2025 12:37
Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Ísfélagið í Vestmannaeyjum hagnaðist um rúmlega tvo milljarða króna í fyrra. Árið áður var hagnaðurinn rúmlega fimm milljarðar. Forstjóri félagsins segir ljóst að afkoma greinarinnar megi ekki við frekari kostnaðarhækkunum þegar tekið er tillit til nauðsynlegra fjárfestinga og eðlilegrar afkomu greinarinnar. Viðskipti innlent 27.3.2025 16:52
„Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Viðskipti innlent 26.3.2025 12:46
Fara í mál við íslenska ríkið og Arctic Sea Farm Veiðifélag Hrútafjarðarár og Síkár og Veiðifélag Blöndu og Svartár hafa höfðað dómsmál gegn íslenska ríkinu og Arctic Sea Farm fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna leyfis Matvælastofnunar fyrir sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði. Innlent 26. mars 2025 11:17
„Fráleitt að halda því fram að þetta muni knésetja útgerðina” Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir fráleitt af útgerðum að halda því fram að nauðsynlegt verði að segja upp þúsundum starfsfólks eða jafnvel flytja fiskvinnslu úr landi vegna tvöföldunar veiðigjaldsins. Bæði veiði og vinnsla hafi skilað síðustu ár meiri hagnaði en aðrar atvinnugreinar á Íslandi. Hanna Katrín fór yfir ákvörðun stjórnvalda í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 26. mars 2025 09:11
Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gætu skilað allt að tvöfalt meiri tekjum í ríkissjóð að sögn ráðherra. Forstjóri útgerðarfyrirtækis segir málið aðför að landsbyggðinni, og illa unnið í þokkabót. Viðskipti innlent 25. mars 2025 21:02
Ósammála hvort að um leiðréttingu sé að ræða Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar segja breytingar á lögum um veiðigjöld annars vegar stórfelldar skattahækkanir og hins vegar gjöld fyrir afnot af þjóðareign. Innlent 25. mars 2025 20:15
„Þessi leiðrétting er hið rétta í stöðunni“ Atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra kynntu í dag drög að lagabreytingum á lögum um veiðigjöld. Gagnrýni barst áður en frumvörpin voru kynnt en fjármálaráðherra segir hana vera langsótta. Samkvæmt greiningu ráðuneytanna sé ljóst að veiðigjöldin hafi átt að vera mun hærri. Innlent 25. mars 2025 17:00
„Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir mikið í húfi hvað sjávarútveginn varðar og því sé mikilvægt að vanda til verka þegar kemur að lagabreytingum sem honum tengjast. Íslenskur sjávarútvegur sé burðarás í atvinnulífinu um allt land. Viðskipti innlent 25. mars 2025 16:29
Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Stjórn Samtaka atvinnulífsins geldur varhug við fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar við lagasetningu gagnvart íslenskum sjávarútvegi. Raungerist áhyggjur samtakanna sé ljóst að breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað muni draga úr hagvexti og lífskjarasókn Íslendinga. Viðskipti innlent 25. mars 2025 15:50
Auðlind þjóðarinnar Fyrr í dag kynntu atvinnuvegaráðherra og fjármálaráðherra fyrirhugaða leiðréttingu á veiðigjaldi. Það er mikið fagnaðarefni að þjóðin fái loksins sanngjarnara gjald fyrir notkun á okkar sameiginlegu auðlind. Skoðun 25. mars 2025 15:31
MAST kærir Kaldvík til lögreglu Matvælastofnun hefur farið fram á opinbera rannsókn lögreglu vegna meintra brota fiskeldisfyrirtækisins Kaldvík á Austfjörðum á lögum um velferð dýra. Þetta kemur fram á vefsíðu MAST. Innlent 25. mars 2025 14:46
Leiðrétt veiðigjöld Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á réttlát auðlindagjöld sem renna skuli að hluta til nærsamfélagsins. Skoðun 25. mars 2025 14:30
Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Atvinnuvegaráðherra segir boðaðar breytingar á útreikningi veiðigjalds vera mikið réttlætismál. Breytingarnar muni allt að tvöfalda innheimt veiðigjald og auknum tekjum verði varið í innviðauppbyggingu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýna áformin harðlega. Viðskipti innlent 25. mars 2025 13:53
Það tók 94 daga að gera það sem beðið hefur verið eftir í rúmlega 40 ár Kvótakerfið var bundið í lög árið 1983. Framsal á kvóta var gefið frjálst nokkrum árum síðar og heimild til að veðsetja þann kvóta, sem úthlutað hafði verið án endurgjalds, fyrir bankalánum var gefin árið 1997. Skoðun 25. mars 2025 13:16
Kynntu breytingar á lögum um veiðigjald Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra munu kynna breytingar á lögum um veiðigjald á fréttamannafundi sem hefst 13. Innlent 25. mars 2025 12:44
Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýna áform ríkisstjórnarinnar um breytingu á veiðigjöldum harðlega. Áformin hafa ekki verið kynnt en samtökin segja þau fela í sér tvöföldun veiðigjalds. „Það er þungur róður fram undan.“ Viðskipti innlent 25. mars 2025 11:48
First Water klárar um sex milljarða hlutafjáraukningu frá innlendum fjárfestum Eftir að hafa lokið núna hlutafjáraukningu upp á nærri sex milljarða króna, leidd af núverandi hluthöfum, hefur landeldisfyrirtækið First Water sótt sér samtals um 24 milljarða í hlutafé frá innlendum fjárfestum á allra síðustu árum. Til stóð að ganga frá umtalsverðri fjármögnun frá erlendum sjóðum á fyrri hluta þessa árs, með aðstoð fjárfestingabankans Lazard, en ljóst er að einhver bið verður á aðkomu þeirra að félaginu. Innherji 25. mars 2025 10:54
Sækja á sjötta milljarð króna First Water, sem sérhæfir sig í sjálfbæru landeldi á laxi í Þorlákshöfn, hefur lokið hlutafjáraukningu að upphæð 39 milljónir evra, sem samsvarar um 5,7 milljörðum króna. Viðskipti innlent 25. mars 2025 10:13
MAST rannsakar gat á sjókví Arnarlax í Patreksfirði Matvælastofnun hefur til rannsóknar gat á nótarpoka í sjókví Arnarlax við Vatnseyri í Patreksfirði. Gat á nótunni uppgötvaðist síðasta fimmtudag, 20. Mars, og var lokað samdægurs. Matvælastofnun rannsakar meðal annars hvort strok hafi átt sér stað og hvort Arnarlax hafi virkjað og farið eftir eigin verklagsreglum og viðbragðsáætlunum. Innlent 24. mars 2025 14:23
Óþolandi ástand Nýlega fjallaði ég um þann mikla mun sem greiddur er fyrir uppsjávarfisk m.a. kolmunna, loðnu og makríl sem veiddur er á sömu slóðum á sama tíma, sem seldur er til tengdra aðila á Íslandi annars vegar og hins vegar í Færeyjum. Þetta lága verð hér á landi hefur bein áhrif á laun sjómanna, veiðigjöldin, hafnargjöld og útsvar sveitarfélaga svo eitthvað sé tínt til. Skoðun 24. mars 2025 14:00
Björk á forsíðu National Geographic „Annað hvert ár vel ég einn hlut sem ég berst fyrir,“ segir Björk í forsíðuviðtali við National Geographic þar sem hún ræðir við Carrie Battan um umhverfismál, aktívisma og list. Björk prýðir nú forsíðu National Geographic, ein af 33 fulltrúum breytinga; hugsjónafólki, höfundum, fyrirmyndum og ævintýrafólki sem trúa því að heimurinn okkar þarfnist úrræða og aðkallandi aðgerða. Lífið 21. mars 2025 11:19
Strandveiðar - afvegaleidd umræða Allt frá því að núverandi ríkisstjórn var mynduð hefur mikil umræða verið um strandveiðar og svokallaða 48 daga sem þeim tengjast. Er engu líkara að hér sé um svo stórt mál að ræða að jafnvel embættisfærslur Bandaríkjaforseta, stríðið í Úkraínu og varnarmál í Evrópu valda minna hugarangri hjá auðugustu öflum í samfélaginu. Skoðun 20. mars 2025 15:03
Er systir þín skyld þér, fáum við rétt borgað og af hverju megum við ekki vita? Í könnun sem Alþýðusamband Íslands (ASÍ) lét Gallup gera í fyrrahaust var spurt hvað svarendum fannst um hlutdeild almennings í þeim arði sem verður til við nýtingu auðlinda á Íslandi, og hvort þeim finnist arðurinn sem fæst af þeim sé réttlátur eða ranglátur. Skoðun 18. mars 2025 07:03