Í frétt á heimasíðu samtakanna í gær, um uppsetningu hvalkjötssjálfsala í Tókýó og fleiri borgum, kemur fram að um þrjúþúsund tonn af kjöti á leið til Japans sigli núna framhjá austur Afríku eftir að hafa verið flutt með leynd frá Íslandi um jólin. Ætlunin sé að flytja árlega langreyðarkjöt sem slátrað sé á Íslandi með samningi sem gæti mögulega haldið hnignandi hvalveiðum við Ísland gangandi.
„Samkvæmt rannsóknum okkar er skipið sem flytur kjötið næstum örugglega „Silver Copenhagen“, sem núna er leið til Singapore,“ segir Astrid Fuchs í pósti til fréttastofu en hún stýrir stefnumótun samtakanna.

Hún vísar til siglingasíðunnar Marinetraffic. Þar má sjá að norska skipið Silver Copenhagen er núna á siglingu á Indlandshafi sunnan við eyjuna Mauritius með Singapore sem næsta áfangastað. Skipið fór nýlega framhjá eyjunni Madagascar eftir að hafa siglt fyrir Góðrarvonarhöfða skammt frá Höfðaborg í Suður-Afríku. Frystiskipið Silver Copenhagen er í eigu skipafélagsins Fjord Shipping sem er með höfuðstöðvar í Måløy á vesturströnd Noregs.
Í frétt Stöðvar 2 fyrir tíu dögum kom fram að flutningaskip hafi lestað hvalkjötið í Hafnarfirði skömmu fyrir jól. Leið skipsins virðist því hafa legið suður Atlantshaf og niður með ströndum Afríku.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um útflutning hvalkjötsins: