„Ég er fyrst og fremst stolt, mjög þakklát fyrir tækifærið og þetta er ógeðslega mikill heiður að vera kölluð upp í svona sterkt og gott landslið,“ sagði Ólöf í samtali við Vísi.
Hún var nokkuð vongóð um að vera valin í landsliðið. „Þetta kom mér alveg á óvart en ég átti alveg von á þessu. Þetta er búið að vera markmið hjá mér og draumur síðan ég byrjaði í fótbolta. Það er frábært að hann sé að rætast,“ sagði Ólöf.

Hún þetta ekki beint fyrir þegar hún fylgdist með Evrópumótinu síðasta sumar í sjónvarpinu, að hún yrði í landsliðinu rúmu hálfu ári seinna, enda glímdi hún við erfið meiðsli þá.
Betri eftir meiðslin
„Nei, ef ég á að vera alveg hreinskilin. Ég bjóst ekkert við því að komast inn í hópinn svona snemma, líka bara eftir meiðslin mín. Mér finnst ég hafa stigið vel upp úr þeim meiðslum. Mér finnst ég hafa komið sterkari til baka, bæði líkamlega og andlega. Ég held ég sé mjög tilbúin fyrir þetta,“ sagði Ólöf. Henni finnst hún vera búin að endurheimta fyrri styrk eftir meiðslin.

„Já, 99 prósent. Það er alltaf eitt prósent. Ég er á góðu róli og finn það alveg. Hnéð er að verða eins og það varð áður, jafnvel betra. Mér finnst þessi meiðsli hafa gert mig að betri leikmanni,“ sagði Ólöf.
Hún er uppalin í Val en var lánuð til ÍA og svo til Þróttar. Hún fann sig vel hjá Laugardalsliðinu og skoraði samtals tólf deildarmörk fyrir það 2020 og 2021. Ólöf gekk svo alfarið í raðir Þróttar í fyrra. Á síðasta tímabili spilaði hún aðeins átta deildarleiki vegna meiðsla og skoraði í þeim fjögur mörk. Hún segir að félagaskiptin til Þróttar hafi verið heillaskref.
„Allavega mig og Þrótt. Mér líður allavega ótrúlega vel hérna. Við erum á mikilli uppleið og það er gaman að vera partur af því,“ sagði Ólöf.
Stefna á toppinn
Hún lýgur engu um uppganginn í Þrótti. Liðið vann sér sæti í efstu deild 2019 og endaði í 5. sæti sem nýliði 2020. Tímabilið á eftir var svo það besta í sögu Þróttar. Liðið endaði í 3. sæti og komst í bikarúrslit. Í fyrra urðu Þróttarar svo í 4. sæti.
„Að gera betur en seinast. Það er alltaf markmiðið,“ sagði Ólöf aðspurð hvert næsta skref Þróttara yrði. Að hennar mati er Þróttur með lið sem getur blandað sér í toppbaráttu Bestu deildarinnar.

„Algjörlega. Við erum enn ungar. Við erum búnar að vera með ungt lið í fjögur ár en erum búnar að þroskast og dafna svo mikið. Það er alltaf sami kjarninn. Ég held við eigum mjög góða möguleika í allt í sumar.“
Ótrúlega gaman að spila með henni
Í vetur hefur Þróttur endurheimt Katie Cousins sem var einn albesti leikmaður efstu deildar 2021.
„Allir sem koma inn í liðið gefa okkur aukakraft og Katie Cousins er frábær. Það er ótrúlega gaman að spila með henni og ég get ekki beðið eftir því að fá hana aftur,“ sagði Ólöf.
Tekur það góða frá öðrum
Ekki stóð á svari er hún var spurð hvaða framherja hún liti helst upp til.
„Mjög margir. Maður tekur það besta frá hverjum og einum en ég myndi segja að Zlatan væri í miklu uppáhaldi. Hann er flottur og með flott hugarfar,“ sagði Ólöf.

En eru svipaðir stælar í henni og Svíanum?
„Jaa, ég er ekkert að sýna það of mikið. Hann er kannski með aðeins meiri stæla en ég. Ég tek bara það góða úr Zlatan og geri það að mínu,“ sagði Ólöf að endingu.