Skoðun

Hugsum til fram­tíðar

Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Við lifum á tímum hraðrar tækniþróunar og í því felast bæði tækifæri og áskoranir. Á næstu árum mun tæknin þróast áfram á ógnarhraða og mikilvægt er að hið opinbera sé samstíga þeirri þróun.

Ísland er í fremstu röð þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu. Með verkefninu Stafrænu Íslandi hefur verið lyft grettistaki í þessum málaflokki, en með aukinni stafrænni þjónustu getum við veitt betri þjónustu, hraðar og óháð staðsetningu. Stafræn þróun hins opinbera býður einnig upp á að störf verða færanlegri og skapa þar af leiðandi atvinnutækifæri í dreifðari byggðum landsins.

Hið opinbera að vera meðvitað um þá framþróun sem á sér stað í atvinnulífinu og standa ekki í vegi fyrir henni. Mín kynslóð hefur nýja sýn á sitt starfsumhverfi og sérfræðingar spá því að vinnumarkaður framtíðarinnar verði mjög frábrugðinn því sem við þekkjum í dag. Þannig munu eldri mælikvarðar á framleiðni eins og stimpilklukkur jafnvel heyra sögunni til en á sama tíma er gervigreind að ryðja sér til rúms í auknum mæli og við sjáum stöðugt nýjar lausnir á þeim vandamálum sem eldri kynslóðir hafa staðið frammi fyrir.

Menntakerfið, atvinnulífið og hið opinbera þarf að fylgja þessari þróun og vera opið fyrir nýjungum og nýsköpun. Þannig náum við árangri og tryggjum að ungt fólk sé tilbúið að takast á við framtíð sem við þekkjum ekki í dag.

Við þurfum að skera niður kostnað hins opinbera, hann er of umfangsmikill. Að skera niður þýðir ekki að veita verri þjónustu, heldur skynsamari.

Það er mín sýn að við getum gert betur í rekstri hins opinbera, til að bæta þjónustu við fólk, forgangsraða betur, ná betri árangri og að yfirbygging og umsýsla sé ekki jafn kostnaðarsöm. Við höfum náð miklum árangri í þeim efnum undanfarið en getum gert enn betur. Til þess þarf skýran sýn um að ríkið sé ekki best að leysa öll vandamál og skýran vilja að sjá tækifærin í því að búa í litlu landi og nýta kosti þess í hagkvæmni og skilvikrni þó að við séum alltaf stórhuga.

Höfundur er 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×