Skoðun

Samgöngusáttmáli í uppnámi?

Ó. Ingi Tómasson skrifar

Forsenda svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins eru bættar samgöngur, hvort sem eru almenningssamgöngur, ferðir einkabílsins eða hjólandi umferð. Forsendur fyrir bættum samgöngum er strætó í sérrými, betri stofnvegir fyrir einkabílinn og bættar hjóla- og gönguleiðir. Jafnframt skipta bættar ljósastýringar miklu máli.

Framkvæmd samgöngusáttmálans

Betri samgöngur ohf. var stofnað til að sjá um framkvæmd samgöngusáttmálans sem samþykktur var árið 2019. Síðustu vikur hafa ýmsir lýst efasemdum og áhyggjum um aukin kostnað við framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans, þar hefur verið nefnt 50% hækkun framkvæmdakostnaðar, Betri samgöngur ohf. benda hins vegar á að hækkunin nemi 11,5% og þar vegi þyngst, hækkandi verðlag og að stofnvegir hafi farið fram úr áætlunum. Mikilvægt er að áframhaldandi samstaða haldist um samgöngusáttmálann. Ljóst er að tafir eru á einhverjum verkþáttum þá sér í lagi þeim sem snúa að uppbyggingu Borgarlínu sem er sérrými fyrir almenningssamgöngur. Kostnaður við framkvæmdir samgöngusáttmálans var áætlaður 120 milljarðir og á framkvæmdum að ljúka árið 2033.

Raunverulegt val um ferðamáta

Spá svæðisskipulagsins (2015) gerir ráð fyrir um að íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgi um 50.000 – 75.000 fram til ársins 2040, nú er ljóst að sú fjölgun verður enn meiri, til að setja þetta í samhengi mun íbúum fjölga álíka og nú búa samanlagt í Hafnarfirði og Kópavogi, ef ekki tekst að breyta ferðavenjum samhliða þeirri fjölgun má gera ráð fyrir að fjölgun bifreiða verði samsvarandi. Nú búa um 240.000 manns á höfuðborgarsvæðinu og skv. Samgöngustofu eru skráð ökutæki á svæðinu um 218.000. Ljóst er að ef lítið verði um framkvæmdir munu umferðatafir með tilheyrandi mengun og kostnaði fyrir íbúa og fyrirtæki halda áfram að vaxa. Ríkið ætti að koma inn í verkefnið með auknum þunga, svo væri frábært ef kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu gætu staðið sameinaðir í að framkvæmd samgöngusáttmálans verði að veruleika. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu gera þá kröfu að samgöngur séu greiðar og að raunverulegt val sé um ferðamáta hvort sem er í almenningssamgöngum, á einkabílnum eða á hjóli.

Höfundur situr í umhverfis- og framkvæmdaráði Hafnarfjarðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×