Þetta kom fram í máli Ástráðs Haraldssonar, setts ríkissáttasemjara, á fréttamannafundi klukkan 10 í dag.
Ástráður sagði að ný miðlunartillaga hefði verið lögð fram í deilunni - tillaga sem komi í stað þeirrar sem Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari lagði fram fyrir rúmum mánuði síðan.
Tillagan mun nú ganga til afgreiðslu, bæði hjá Samtökum atvinnulífsins og Eflingu. Atkvæði verða greidd rafrænt á vef sáttasemjara og hefst atkvæðagreiðslan á föstudaginn, 3. mars, og lýkur á miðvikudaginn í næstu viku, 8. mars.
Ástráður sagðist hafa átt samtöl við deiluaðila í gær, en vildi þó ekki segja nánar um hvað sérskaklega var rætt.
Sjá má fréttamannafund Ástráðs í spilaranum að neðan.
Sömu hækkanir og í SGS-samningum og afturvirkni
Hann segir að í miðlunartillögunni er gert ráð fyrir að launahækkanir Eflingar verði þær sömu og í SGS-samningnum svokölluðu. Gert er ráð fyrir fullri afturvirkni aftur til 1. nóvember síðastliðinn. Í tillögunni er gert ráð fyrir breytingu á starfsheiti fyrir almennt starfsfólk í gistihúsum og sömuleiðis breyting á launaflokki þeirra.
Annars er efnislega um sama samkomulag að ræða og í SGS-samningnum.
Þá kom fram í máli Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, að bílstjórar hjá Samskipum hækki um launaflokk og bílstjórar fái bónus fyrir að aka með hættuleg efni.
Settur ríkissáttasemjari segir að allar ráðstafanir verði gerðar til að koma á framfæri aðgengilegum kynningum á efni tillögunnar.
Rétti tíminn
Ástráður sagði sömuleiðis að deiluaðilum verði óheimilt að setja fram yfirlýsingar sem séu til þess fallnar að setja miðlunartillöguna í annað ljós. Það sé lögbundið.
Hann sagði að hann hafi talið þetta vera rétta tímann til að leggja fram miðlunartillögu. Þá sagði hann tilgangslaust hafa verið, miðað við stöðu mála, að setja fram miðlunartillögu nema vissa væri fyrir því að atkvæði yrðu greidd um hana.