Þetta staðfestir Auður Elísabet Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar í samtali við fréttastofu.
Verbúðin sópaði til sín tilnefningum til Edduverðlauna þegar þær voru kunngjörðar á föstudaginn. Athygli vakti að handrit þáttanna var ekki tilnefnt. Misskilningur milli framleiðanda og framkvæmdastjóra Eddunar olli því að umsókn í flokknum handrit ársins var ekki fullkláruð inni í innsendingarkerfinu. Því kom umsóknin aldrei til kasta kjörnefndar.
Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían fól í gær framkvæmdastjóra sínum að kalla valnefnd í flokknum handrit ársins til starfa til að meta hvort tilnefna ætti Verbúðina fyrir handrit ársins. Yrði það niðurstaðan sú að tilnefna Verbúðina þá yrðu sex handrit tilefnd í þeim flokki í stað fimm.
Ekki hlutverk framkvæmdastjóra eða stjórnar að staðreyna innsendingar
Stjórn ÍKSA sagðist hafa orðið þess áskynja síðdegis á föstudag að innsending í flokkinn hefði ekki borist frá aðstandendum Verbúðarinnar ólíkt öðrum flokkum sem bárust. Aðstandendur Verbúðarinnar hefðu þó talið sig í góðri trú hafa sent slíka umsókn og að handrit þáttarins kæmi því til greina.
„Eftir að stjórn hafði gert sér grein fyrir þessari stöðu var farið í að skoða alla verkferla málsins. Eftir ítarlega skoðun á gögnum og samskiptum er ljóst að misskilningur milli framkvæmdastjóra og framleiðanda í samskiptum er varða innsendingarkerfið olli því að framleiðandi taldi umsókn um handrit ársins afgreidda þegar raunin var að umsóknin hafði ekki verið fullkláruð inni í innsendingarkerfinu,“ sagði í tilkynningu til meðlima í akademíunni í gær.
Þó var áréttað að það væri ekki hlutverk framkvæmdastjóra eða stjórnar að staðreyna hvort aðstandendur verka hefðu sótt um einstaka flokka fagverðlauna í innsendingarferlinu.
„Þetta er ákvörðun og á ábyrgð þeirra sem senda inn verk. Hlutverk stjórnar varðandi innsendingar eftir að fresti lýkur er fyrst og fremst að skoða hvort verkefni uppfylli þau skilyrði sem kveðið er á um í starfsreglum.“
Einn stjórnarmaður mótfallinn
Þá kom fram í tilkynningunni að mikilvægt væri að allir lúti sömu reglum þar á meðal um skilafrest, og að þeim sé ekki breytt meðan ferli innsendinga, tilnefninga og kosninga stendur yfir. Í ljósi þess að hér kom upp misskilningur milli aðila telur stjórn ÍKSA rétt að heimila valnefnd að fjalla um handrit Verbúðarinnar. Í þeirri rýnivinnu sem nú stendur yfir varðandi tilhögun Edduverðlaunanna, verða gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að uppákomur sem þessar eigi sér stað síðar.“
Ekki var einhugur í stjórn ÍKSA að skoða á ný hvort handrit Verbúðarinnar yrði tilnefnd. Þetta upplýsir Ásgrímur Sverrisson, stjórnarmaður og ritstjóri kvikmyndavefsins Klapptré, í pistli á vef sínum í dag. Hann segir óréttanlegt að Verbúðin fái að senda handritið inn sex vikum eftir að fresturinn rann út.
„Reglur liggja auðvitað fyrir áður en innsendingar hefjast og ekkert í þessu máli gerir það verjanlegt að breyta þeim meðan á ferlinu stendur,“ segir Ásgrímur í pistli sínum.
Sex í flokki í andstöðu við reglur
„Ákvörðun meirihluta stjórnar skapar það fordæmi að tiltekinn aðili þurfi ekki að lúta sömu reglum og aðrir, að gera megi sérstakar ívilnanir í hans þágu.“
Þá standi skýrt í reglum að tilnefningar í flokkum skuli vera þrjár eða fimm. Nú séu þær sex í flokknum handrit ársins. Ekki gangi upp að breyta reglum meðan á ferlinu stendur.
„Ljóst er að aðstandendur Verbúðarinnar völdu ekki flokkinn Handrit ársins í innsendingarferlinu sem lauk 24. janúar síðastliðinn, sendu ekki inn handrit eins og reglur kveða á um og greiddu ekki innsendingargjald vegna handritsflokks. Þetta gerðu aðrir.“
Tilnefningarnar orðnar fjórtán
Verbúðin hlaut tilnefningu í þrettán flokkum og nú hefur fjórtánda tilnefningin bæst við. Því má eiga von á verðlaunaflóði þegar verðlaunin verða veitt sunnudaginn 19. mars.
Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson og Mikael Torfason skrifuðu handritið sem hlotið hefur verðlaun Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.
Hér má sjá lista yfir allar tilnefningar til verðlaunanna en eftirtaldir sex aðilar berjast nú um verðlaunin fyrir handrit ársins.
- Heimir Bjarnason - Þrot
- Bergsveinn Birgisson, Ottó G. Borg og Ása Helga Hjörleifsdóttir- Svar við Bréfi Helgu
- Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi
- Hlynur Pálmason - Volaða land
- Vala Þórsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir & Eva Sigurðardóttir - Vitjanir
- Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson og Mikael Torfason - Verbúðin