„Sama pæling og þegar gaurinn sem var efnilegur í þriðja flokki ákveður að fara í bumbubolta“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. mars 2023 08:01 Ormar eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. Skjáskot/Vísir Hljómsveitin Ormar samanstendur af Elvari, Herði og Sólrúnu Mjöll og sérhæfir sig í grugg rokki frá tíunda áratuginum. Þau eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár.
Nú styttist óðum í Hlustendaverðlaunin 2023 sem fara fram 17. mars næstkomandi í Háskólabíói. Nýliði ársins er meðal verðlaunaflokka og eru átta hljómsveitir og tónlistarmenn sem keppast um titilinn. Lífið á Vísi ræddi við allt tónlistarfólkið sem var tilnefnt í þessum flokki og fékk smá innsýn inn í sköpunargleði þeirra og tónlist. Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan: Klippa: Nýliðinn: Ormar Hver eruð þið með eigin orðum? Elvar, Hörður og Sólrún eru venjulegir Íslendingar, yfirfull af orku og mynda hljómsveitina Orma. Hvernig mynduð þið lýsa ykkar tónlistarstíl? Kraftur, spenna, tilfinningaríkt, grípandi, drífandi. Stíllinn þróast og mótast með tímanum, en fyrst og fremst er þetta rokk. View this post on Instagram A post shared by Ormar (@band_ormar) Hver var kveikjan að því að þið byrjuðuð í tónlist? Það er sennilega best að svara spurningunni út frá því hvernig hljómsveitin okkar varð til. Í stuttu máli fengu Elvar og Hörður hana Sólrúnu Mjöll (úr Flott, Ceasetone og fleira) með sér í lið til að spila amerískt grugg rokk frá tíunda áratugnum, eitthvað sem þeir höfðu ekki gert saman síðan þeir voru unglingar. Í grunninn var þetta sama pæling og þegar gaurinn sem var efnilegur í 3. flokki í fótbolta ákveður að fara í bumbubolta með vinahópnum. Strax eftir fyrstu æfingu fundu þau þörf fyrir að skapa eigin tónlist og hafa ekki stoppað síðan. Hvað er það skemmtilegasta við að vinna í tónlist? Þetta er félagsskapur og það er fátt eins skemmtilegt og að búa til eitthvað úr engu með bestu vinum þínum. Við elskum að æfa, sérstaklega á daginn. Það er eitthvað svo fyndið að spila rokktónlist í nokkra klukkutíma á morgnana. En svo er auðvitað skemmtilegast að koma fram og spila fyrir fólk. Gefa út tónlist. Fá viðbrögð. Fara í stúdíó. Gefa út meira. Og sjá barnið vaxa. View this post on Instagram A post shared by Ormar (@band_ormar) En erfiðasta? Við tókum ákvörðun að allir okkar textar yrðu að vera á íslensku. Okkur finnst það mjög skemmtilegt, en á sama tíma mun erfiðara. Við finnum að textarnir verða persónulegri og oft er hægt að sitja lengi yfir litlum setningum. Tónlistarbransinn er krefjandi og til að skapa sér nafn þarf að leggja rosalega mikið inn og þú veist aldrei hvað kemur út úr því. Að stofna hljómsveit, æfa, semja lög og spila á tónleikum er skemmtilegi parturinn. Það sem er erfiðast er markaðssetningin. Hundruðir pósta, halda utan um samfélagsmiðla, fjármögnun og svo framvegis. Það getur tekið á. Er eitthvað við tónlistarbransann sem hefur komið ykkur á óvart? Það er gaman að hitta tónlistarfólk sem er komið lengra í bransanum, og komast að því að þau eru að klessa á sömu veggi og maður sjálfur. Það er einhver þægileg huggun að átta sig á því að fólk sem maður virðir og lítur upp til eru álíka miklir sauðir og maður sjálfur. View this post on Instagram A post shared by Ormar (@band_ormar) Drauma samstarfs aðili? Þeir eru mjög margir. Okkur langar að gefa út lög með stórum nöfnum úr íslensku rokki og vonumst eftir að geta gert það á komandi plötum. Við eigum okkur líka þann draum að taka tónleikaferðalag um landið með goðsagnakenndum hljómsveitum eins og 200.000 Naglbítum eða Botnleðju. Svo væri frekar töff að gera plötu með Steve Albini og Butch Vig. Eigið þið einhverja íslenska fyrirmynd í tónlistarheiminum? Mjög margar. Kannski einfaldast að nefna hljómsveitir á borð við Maus, Ensími, Botnleðju, Mínus og Brain Police. En almennt bara flott tónlist með góðum texta. View this post on Instagram A post shared by Ormar (@band_ormar) Hvernig var tilfinningin að fá tilnefningu sem Nýliði ársins? Það var frekar magnað. Við vorum alveg búin að tala um það okkar á milli hvað það væri nett að fá tilnefningu, þannig það blundaði einhver smá von í okkur. Svo þegar við fengum tilnefninguna vorum við ekkert smá hissa. Kannski tókst okkur að manifesta þetta? Við erum allavega fáránlega stolt af því að vera á þessum lista ásamt flottu tónlistarfólki sem eru flest eða öll að fara að gera stóra hluti í framtíðinni. Þetta hvetur okkur áfram til að gera meiri músík.
Hlustendaverðlaunin Tónlist Tengdar fréttir „Maður átti helst ekkert að tala um aldurinn sinn“ Tónlistarkonan og leikkonan Silja Rós er að eigin sögn orkumikil tilfinningavera sem lifir fyrir að skapa list. Það kom snemma í ljós hvert stefndi þar sem hún var syngjandi allan daginn sem barn og henni líður hvergi betur en á sviðinu. Silja Rós er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 14. mars 2023 08:01 „Algjör draumur að geta unnið við það sem ég elska“ Tónlistarkonan Una Torfadóttir ber marga hatta og segist fyrst og fremst vera stemningskona. Hún hefur verið í kringum tónlist allt sitt líf og segir algjöran draum að geta nú unnið við það sem hún elskar. Una Torfa er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 13. mars 2023 16:01 „Það er ekkert plan B“ Rapparinn Daniil skaust upp á stjörnuhimininn í fyrra en hann byrjaði í tónlist eftir að vinur hans fékk Macbook tölvu þegar þeir voru yngri. Honum finnst allt skemmtilegt við tónlistarbransann og stefnir bara lengra. Daniil er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 13. mars 2023 08:01 Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin 2023 er hafin Hlustendaverðlaunin 2023 verða haldin föstudaginn 17. mars en þetta er í tíunda skipti sem hátíðin fer fram. Kosningin fer fram á Vísi og hófst nú í hádeginu. 9. febrúar 2023 12:00 Fimm konur tilnefndar til Kítón verðlaunanna Fimm konur eru tilnefndar til Kítón verðlaunanna í ár. Sigurvegari þeirra verður kynntur á Hlustendaverðlaununum þann 17. mars næstkomandi. 24. febrúar 2023 13:38 Brotlenti svolítið eftir Söngvakeppnina Tónlistarmaðurinn Stefán Óli vakti athygli þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Hann elskar að flytja sína eigin tónlist upp á sviði og stefnir á að gefa út plötu á komandi tímum. Stefán Óli er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 15. mars 2023 16:01 „Maður er eins og guð í smá stund“ Tónlistarkonan og leikkonan Elín Hall skaust fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 þegar hún tók þátt í Söngvakeppninni aðeins sextán ára gömul. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá hjá Elínu, sem leikur meðal annars í sýningunni Níu líf í Borgarleikhúsinu og hefur gefið út sóló plötu. Elín Hall er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 15. mars 2023 08:01 „Ekkert erfitt við tónlist nema að fá pening fyrir hana“ Hljómsveitin Kvikindi samanstendur af Brynhildi Karlsdóttur, Friðriki Margrétar-Guðmundssyni og Valgeiri Skorra Vernharðssyni. Með tónlist sinni leggja þau upp úr því að koma fólki til að dansa í gegnum tárin, finna stelpulegu hliðina og elska meira en tónlistin hefur alltaf verið hluti af þeirra lífi. Kvikindi eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 14. mars 2023 16:02 Mest lesið „Ég hélt svo innilega að það væri stelpa“ Lífið Yfir fimmtíu fengu sér tattú í stórafmæli Steinda Lífið Úttekt á merkilegu orðfæri Ingu Sæland Lífið „Sá síðasti dó á þessu ári“ Lífið Trump yngri er algjör kvennabósi Lífið Bríet olli vonbrigðum Gagnrýni Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum Lífið Selena komin með hring Lífið Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Tónlist Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira
„Maður átti helst ekkert að tala um aldurinn sinn“ Tónlistarkonan og leikkonan Silja Rós er að eigin sögn orkumikil tilfinningavera sem lifir fyrir að skapa list. Það kom snemma í ljós hvert stefndi þar sem hún var syngjandi allan daginn sem barn og henni líður hvergi betur en á sviðinu. Silja Rós er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 14. mars 2023 08:01
„Algjör draumur að geta unnið við það sem ég elska“ Tónlistarkonan Una Torfadóttir ber marga hatta og segist fyrst og fremst vera stemningskona. Hún hefur verið í kringum tónlist allt sitt líf og segir algjöran draum að geta nú unnið við það sem hún elskar. Una Torfa er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 13. mars 2023 16:01
„Það er ekkert plan B“ Rapparinn Daniil skaust upp á stjörnuhimininn í fyrra en hann byrjaði í tónlist eftir að vinur hans fékk Macbook tölvu þegar þeir voru yngri. Honum finnst allt skemmtilegt við tónlistarbransann og stefnir bara lengra. Daniil er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 13. mars 2023 08:01
Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin 2023 er hafin Hlustendaverðlaunin 2023 verða haldin föstudaginn 17. mars en þetta er í tíunda skipti sem hátíðin fer fram. Kosningin fer fram á Vísi og hófst nú í hádeginu. 9. febrúar 2023 12:00
Fimm konur tilnefndar til Kítón verðlaunanna Fimm konur eru tilnefndar til Kítón verðlaunanna í ár. Sigurvegari þeirra verður kynntur á Hlustendaverðlaununum þann 17. mars næstkomandi. 24. febrúar 2023 13:38
Brotlenti svolítið eftir Söngvakeppnina Tónlistarmaðurinn Stefán Óli vakti athygli þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Hann elskar að flytja sína eigin tónlist upp á sviði og stefnir á að gefa út plötu á komandi tímum. Stefán Óli er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 15. mars 2023 16:01
„Maður er eins og guð í smá stund“ Tónlistarkonan og leikkonan Elín Hall skaust fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 þegar hún tók þátt í Söngvakeppninni aðeins sextán ára gömul. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá hjá Elínu, sem leikur meðal annars í sýningunni Níu líf í Borgarleikhúsinu og hefur gefið út sóló plötu. Elín Hall er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 15. mars 2023 08:01
„Ekkert erfitt við tónlist nema að fá pening fyrir hana“ Hljómsveitin Kvikindi samanstendur af Brynhildi Karlsdóttur, Friðriki Margrétar-Guðmundssyni og Valgeiri Skorra Vernharðssyni. Með tónlist sinni leggja þau upp úr því að koma fólki til að dansa í gegnum tárin, finna stelpulegu hliðina og elska meira en tónlistin hefur alltaf verið hluti af þeirra lífi. Kvikindi eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 14. mars 2023 16:02