Átta til viðbótar eru særðir og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segir að tala látinna gæti hækkað enn. Um fimmtíu manns voru í samkomusalnum þegar skotárásin hófst, að því er kemur fram í frétt Reuters.
Fórnarlömbin eru öll þýskir ríkisborgarar fyrir utan tvær konur sem særðust. Önnur þeirra er frá Úganda en hin frá Úkraínu. Á meðal þeirra látnu voru fjórir karlar og tvær konur auk ófædds stúlkubarns. Lögreglan segir að móðir þess hafi lifað af. Byssumaðurinn svipti sig lífi.
Lögregla viðurkenndi í dag að henni hefði borist nafnlaus ábending um að byssumaðurinn hefði sýnt sérstaka reiði í garð trúarhópa, votta sérstaklega og vinnuveitanda síns í janúar. Hann kynni að vera óhæfur andlega til þess að eiga skotvopn.
Maðurinn hafi reynst samvinnuþýður og lögregla ekki haft neina ástæðu til þess að svipta hann hálfsjálfvirkri skammbyssu sem hann átti löglega.
Árásarmaðurinn hefur aðeins verið nafngreindur sem Philipp F. en hann var 35 ára gamall þýskur ríkisborgari. Lögregla segir að hann hafi gengið sjálfviljugur úr vottasöfnuðinum fyrir einu og hálfu ári en svo virðist sem að það hafi ekki verið í góðu. Yfirvöld segjast hafa útilokað að árásin hafi átt sér pólitískar rætur.
Talið er að morðinginn hafi skotið oftar en hundrað sinnum inni í salnum. Lögreglumenn virðast hafa komið á vettvang þegar árásin var enn í gangi. Þegar þá bar að garði hafi byssumaðurinn hlaupið upp á efri hæð byggingarinnar og skotið sjálfan sig. Lögreglan telur að hún hafi forðað frekari mannfalli þrátt fyrir að hún hafi ekki þurft að beita skotvopnum til að stöðva morðingjann.