Xi mun verja nokkrum dögum í Moskvu en formlegur fundur forsetanna tveggja er í dag.
Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því að Xi ætli sér að byrja að aðstoða Rússa með beinum hætti vegna innrásar þeirra í Úkraínu og senda þeim skotfæri og vopn. Hvort af því verður liggur ekki fyrir enn.
Dmirí Peskóv, ralsmaður Pútíns, hefur lítið sagt um hvað forsetarnir ræddu sín á milli í gær.
RIA fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hefur eftir Peskóv að Xi og Pútín hafi átt „alvarlegt samtal“ og skipst á skoðunum. Hann vildi ekkert frekar segja og sagði réttast að bíða eftir opinberum tilkynningum.
Þegar Xi og Pútín hittust síðasta í Kasakstan í september í fyrra en þá sagðist Xi hafa áhyggjur af innrás Pútíns í Úkraínu.
Sjá einnig: Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu
Nú jusu þeir hvorn annan lofi og var augljóst að markmiðið var að sýna mikla samstöðu.
Bæði Rússland og Kína eru í andstöðu gegn núverandi alþjóðakerfi, sem myndað var af Vesturlöndum eftir seinni heimsstyrjöldina.
Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) gáfu í síðustu viku út handtökuskipun á hendur Pútín fyrir stríðsglæpi í Úkraínu, vegna fjölda úkraínskra barna sem flutt hafa verið nauðungarflutningum til Rússlands. Þar hafa börnin verið vistuð á stofnunum eða ættleidd til rússneskra fjölskyldna, jafnvel þó þau séu ekki munaðarlaus.
Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi heimsókn Xi í gær og sagði að með henni væri forsetinn kínverski að veita Pútín pólitískt skjól frá áframhaldandi stríðsglæpum Rússa í Úkraínu. Hann sagði einnig að heimsóknin gæfi til kynna á að Kínverjar hefðu lítinn áhuga á því að draga Pútín til ábyrgðar fyrir ódæði Rússa í Úkraínu.