Hljómsveitin Fjöll gefur út sitt fyrsta lag
„Það er mjög nýtt fyrir mér að fara í viðtöl og ræða eitthvað annað en vísitölur og leiðindi,“ segir Ragnar en hann mætti ásamt Kristni Jóni Arnarsyni í viðtal hjá Tomma Steindórs á X-inu á dögunum.
Þann 16. mars sendi hljómsveitin Fjöll frá sér sitt fyrsta lag, Festar en Ragnar er einn fjögurra meðlima hljómsveitarinnar.

Fann ástríðuna aftur
Þótt Fjöll séu ný hljómsveit byggir hún á gömlum grunni en þrír meðlimir sveitarinnar, Guðmundur Annas Árnason söngvari, Snorri Gunnarsson gítarleikari og Kristinn Jón Arnarson bassaleikari hófu samstarf í hljómsveitinni Soma sem gerði garðinn frægan fyrir rúmum aldarfjórðungi.
„Frá því að ég hitti þá fyrst og við byrjuðum að spila saman þá kom þessi ástríða aftur,“
segir Ragnar sem hefur sjálfur verið viðloðinn tónlistarbransann í gegnum tíðina með hinum ýmsu hljómsveitum en hann var ungur þegar hann byrjaði fyrst að tromma.
Þetta var mín leið til þess að rasa út, þá voru ekki til nein lyf eins og rítalín og svona.
Lagið Festar segja þeir vera ljúfsáran og seigfljótandi óð til horfinna tíma og rofinna tengsla en fleiri lög eru væntanleg frá hljómsveitinni von bráðar.
Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtalið við þá Ragnar Þór og Kristinn Jón í heild sinni:
Lagið Festar var tekið upp í Hljóðrita og sá Kristinn Sturluson um upptöku og mix. Þá fengu Fjöll Jón Ólafsson til að sjá um píanóleik í laginu.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast lagið á Spotify.