Gísli Þorgeir hefur verið hjá Magdeburg frá árinu 2020 þegar hann gekk til liðsins frá Kiel. Hann er í dag í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu og hefur hreinlega blómstrað hjá félaginu, en þar náði hann loks ferlinum af stað eftir gríðarlega erfið meiðsli í öxl sem höfðu plagað hann frá árinu 2018.
„Með mína sögu þá er mjög gott að geta komið sér vel fyrir. Mér líður ótrúlega vel hérna í Magdeburg og er með hrikalega góða vini hérna í liðinu og með Ómar [Inga Magnússon] í liðinu. Hérna er gott umhverfi og það er margt sem spilar inn í hjá þessu félagi sem lét mig taka þessa ákvörðun,“ segir Gísli í samtali við Stöð 2 í kvöld.
Hann segir að forsvarsmenn félagsins hafi lagt mikið á sig til að endursemja við sig.
„Ég er ekkert að skrifa undir bara til að skrifa undir. Ég lít líka á þetta þannig að við erum með heimsklassa lið og erum með lið sem getur gert alvöru hluti á næstu árum. Við unnum deildina í fyrra, erum í keppni um að vinna hana aftur núna og erum í Meistaradeildinni og komnir í Final Four í bikarnum og vorum í öllum úrslitaleikjum sem við gátum á síðasta tímabili. Við erum með lið sem getur verið í baráttunni um alla titla á næstu árum.“
Samkvæmt heimildum Stöðvar höfðu stærstu félög Evrópu á borð við PSG og Barcelona mikinn áhuga á því að klófesta miðjumanninn.
„Það er sama hvort sem það er Spánn eða Frakkland þá vildi ég mest vera áfram í Bundesligunni. Ég vildi ekki fara of snemma úr deildinni og vil halda mér eins lengi í bestu deildinni. Hér er troðfull höll í hverjum leik og andrúmsloftið hér er magnað. Það er ekki alveg þannig í hverjum leik á Spáni og í Frakklandi.“