Hættustig er áfram í gildi vegna ofanflóða í Neskaupstað, á Seyðisfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði og gul viðvörun er í gildi á svæðinu vegna rigningar og asahláku samhliða hlýindum. Líkur eru á talsverðri rigningu fram undir hádegi á morgun.
Rýmingum var aflétt að hluta í dag og gert var ráð fyrir því að unnt yrði að aflétta enn frekar.
Í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Austurlandi segir að það sé ekki talið öruggt að svo stöddu. Staðan sé endurmetin í sífellu og frekari tilkynningar verði gefnar út þegar breytingar verða á henni.
Mörg snjóflóð hafa fallið síðasta sólarhringinn
Í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands segir að mörg snjóflóð hafi fallið síðasta sólarhringinn fyrir austan. Stærstu snjóflóðin hafi fallið í Neskaupstað í gær og tvö þeirra á varnir ofan byggðarinnar. Snjóflóð sem hafa fallið í dag hafi verið minni og stöðvast ofar. Í dag hafi fallið krapaflóð víða, meðal annars í Berufirði, Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði.
„Það dregur úr hættu á stórum snjóflóðum þegar blotnar í snjó á láglendi og fer að rigna í upptakasvæðum. Hinsvegar eykst hætta á krapaflóðum í rigningunni í dag og á morgun,“ segir í tilkynningunni.