Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Í vesturbænum var lögreglan kölluð til vegna líkamsárásar og eignaspjalla rúmlega tíu í gærkvöldi.
Frá tíu til eitt sinnti lögreglan eftirliti með samkomustöðum í miðborg Reykjavíkur. Þar kom í ljós að réttindalausir dyraverðir voru við störf á sex stöðum. Þeim var gert að hætta störfum á meðan vaktstjórar útveguðu dyraverði með réttindi í staðinn. Málin eru rannsökuð sem brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og eiga staðirnir og ábyrgðarmenn þeirra yfir höfði sér sekt vegna þessa.
Laust fyrir þrjú voru tveir aðilar kærðir fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri í miðbænum. Það hefur verið dýrt piss.
Ökumenn grunaðir um akstur undir áhrifum eða akandi réttindalausir
Víða um höfuðborgarsvæðið voru ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum eða þá sektaðir vegna annarra brota.
Skömmu fyrir fjögur í nótt var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis í Bústaðahverfi. Fyrr um kvöldið höfðu tveir ökumenn verið handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna, annar í miðbæ Kópavogs og hinn í Fellahverfinu í Breiðholti. Allir þrír voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Ökumenn voru einnig sektaðir vegna annarra brota. Tveir ökumenn voru sektaðir fyrir að aka bifreið sviptir ökuréttindum, annar um kvöldmatarleytið í Hafnarfirði og hinn um þrjúleytið í nótt í Grafarvoginum. Þá var einn ökumaður sektaður fyrir að aka með of marga farþega og voru börn ekki í viðeigandi öryggisbúnaði þar. Að sögn lögreglu verður málið tilkynnt til barnaverndarnefndar.