„Ég er augljóslega mjög fúll. Það er súrt að allt sé búið og líka hvernig við dettum út, það er líka hundfúlt. Þetta er bara fúlt.“
Jóhann var afar óánægður með fyrri hálfleikinn hjá Grindavík í þessum þriðja leik en liðið var tuttugu stigum undir í hálfleik.
„Við erum aftur ekki með fyrstu tuttugu mínúturnar og þar liggur hundurinn grafinn. Það er bara einfalt. Við erum með lykilmenn í einhverju móki. Við eigum erfitt með að einbeita okkur að uppleggi. Við vorum að leggja leikinn upp á ákveðinn hátt. Það voru atvinnumenn í liðinu sem voru á 50 prósent hraða. Það eru þessir strákar sem eiga hrós skilið sem eru að halda okkur inn í þessu og koma okkur inn í þetta aftur.“
Jóhann var því næst spurður hvort það hefði verið helsta vandamálið í leik Grindvíkinga að illa hafi gengið að framfylgja því sem var lagt upp með fyrir fram.
„Við vorum bara ekki klárir. Ég get ekki svarað fyrir það núna eftir leik. Næsta spurning.“
Grindavíkurliðið fer núna í sumarfrí og næsta verkefni þess er einfaldlega komandi leiktíð sem hefst að hausti. Grindavík komst síðast í gegnum átta liða úrslit deildarinnar 2017. Jóhann var ekki með svör á reiðum höndum svo skömmu eftir síðasta leik liðsins á þessari leiktíð hvaða breytingar þyrfti hugsanlega að gera hjá félaginu til að auka líkurnar á að komast lengra.
„Ég veit það ekki. Þessi deild er eitthvað það fáránlegasta sem til er. Það eru níu til tíu lið sem ætla sér að vinna mótið að hausti. Við höfum ekki verið í þeirri stöðu. Það er ógeðslega gaman að taka þátt í þessu og fúlt að komast ekki lengra en við erum með lið eins og KR sem er fallið. Þannig að ég myndi segja að við værum í ágætis málum.“
Jóhann var aðalþjálfari Grindavíkur frá 2015-2019 og tók aftur við stöðunni fyrir þessa leiktíð eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins veturinn 2021-2022. Það er óljóst á þessari stundu hvort hann verður áfram aðalþjálfari.
„Ég veit það ekki. Þetta var einhver skítaredding í sumar og ég veit ekki hvað verður. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson að lokum.