Forseti Íslands var heiðursgestur afmælishátíðarinnar en hátíðardagskráin fór fram í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Kór skólans söng tvö lög og svo voru flutt nokkur ávörp og opið hús var í skólanum. Málverk af fyrrverandi skólameistara, Halldóri Páli Halldórssyni var afhjúpað en Gunnar Júlíusson, listamaður og fyrrverandi nemandi skólans málaði verkið.
„Þetta er skóli, sem byggir á öflugum hefðum og öflugu bóknámi en grundvallast kannski fyrst og fremst í góðu félagslífi og þessu lífi, sem skapast og stemmingunni á heimavistinni. Skólinn er mjög vinsæll enda eigum við bara mjög góðu gengi að fagna hér,“ segir Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni.

„Kæru Laugvetningar, hjartanlega til hamingju með afmælið og megi Menntaskólinn að Laugarvatni áfram vaxa og dafna landi og þjóð til heilla. Megið þið halda í forna siði en fagna um leið ferskum straumum,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands meðal annars í ávarpi sínum.
Óskar H. Ólafsson var í fyrsta árgangi skólans.
„Við vorum tíu félagarnir, sem útskrifuðumst 1954 fyrsta árið. Skólinn var þá bara eins og hann er núna. Hann saman stóð af góðu fólki, góðum kennurum og góðum nemendum,“ segir Óskar.

Núverandi nemendur skólans segja félagslífið miklu skemmtilegra en námið sjálft.
„Ó já, miklu skemmtilegra, jú, jú, það er eiginlega ekkert hægt að þræta um það,“ segir Agnes Fríða Þórðardóttir stallari skólans.
“Það eru ógleymanleg kvöld þegar maður er upp í herbergi með vinum og félögum að spila og spjalla, það er það sem er félagslífið, það erum við krakkarnir, “ segir Óskar Snorri Óskarsson fyrrverandi stallari skólans.
