Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þar á meðal um lagaumhverfi hennar og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum. Þann 1. febrúar síðastliðinn var ákveðið að áfangaskipta starfi hópsins þannig að fyrst yrði skilað skýrslu sem fæli í sér greiningu og mat á viðfangsefninu.
Starfshópinn skipuðu þau:
- Hilmar Gunnlaugsson formaður hópsins
- Björt Ólafsdóttir, fyrrv. ráðherra umhverfis- og auðlindamála
- Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrv. alþingismaður.
Í skýrslunni sem er greining og mat á núverandi umhverfi á vindorku hérlendis eru dregin saman ýmis álitaefni og settir fram valkostir um hvaða leiðir séu færar. Málefnin sem fjallað er um er m.a. hvort þörf sé á heildarstefnumörkun stjórnvalda um virkjun vindorku, því velt upp hvort vindorka eigi áfram að heyra undir lög um rammaáætlun og hvaða leiðir séu færar við gjaldtöku af vindorkuverum.