Skoðun

Opið bréf til ráð­herra og al­þingis­manna

Karen Jónsdóttir, Eygló Björk Ólafsdóttir, Oddný Anna Björnsdóttir og Ólafur Stephensen skrifa

Í framhaldi af umræðu um stöðu birgja við gjaldþrot fyrirtækja og lög um samningsveð.

Við undirrituð skorum á háttvirt Alþingi að endurskoða 36. gr. laga um samningsveð nr. 75/1997.

Öllum má það vera ljóst þegar fyrirtæki er stofnað að því fylgi ákveðin áhætta og felst áhættan aðallega í því að ekki sé hægt að innheimta skuld sem búið er að stofna og verður því töpuð krafa. Þegar stofnað er til viðskipta ávinnst traust í gegnum árin og þetta traust myndar góð viðskiptatengsl sem yfirleitt eru gagnkvæm. Traustið felst meðal annars í því að fyrirtæki í viðskiptum aðstoða hvert annað í hremmingum en það er ætíð beggja hagur. Greiðslufrestir, sem veittir eru til að greiða fyrir viðskiptum, byggjast sömuleiðis á slíku trausti.

Undirrituð hvetja dómsmálaráðherra og Alþingi til að beita sér fyrir breytingum á 36. gr. laga um samningsveð nr. 75/1997 en ákvæðið í núgildandi mynd auðveldar fyrirsvarsmönnum fyrirtækja að færa eignir á nýtt fyrirtæki eftir gjaldþrot. Samkvæmt ákvæðinu verður söluveð ekki stofnað í hlutum sem ætlaðir eru til endursölu þótt kaupverðið hafi ekki verið greitt. Ákvæðið kemur í veg fyrir að innflytjendur og heildsalar geti gert eignarréttarfyrirvara vegna vara sem ætlaðar eru til endursölu. Þetta grefur undan því viðskiptatrausti sem flestir vilja varðveita og auðveldar rekstraraðilum að setja fyrirtæki í þrot og byrja upp á nýtt á nýrri kennitölu.

Greinin getur virkað á þann hátt að allar vörur sem eru til staðar í fyrirtækinu þegar það fer í þrot verða sjálfkrafa eign þrotabúsins hvort sem greitt hefur verið fyrir þær eður ei, þ.e vörur sem eru í raun eign birgja renna sjálfkrafa til þrotabúsins þar sem lánastofnun hefur allsherjarveð í þeim. Þessar vörur eru síðan seldar og tekjurnar nýttar til að greiða forgangskröfur. Birgjar eru síðastir í forgangsröðinni og fá sjaldnast nokkuð upp í sitt tjón.

Birgjar eru stórar heildsölur, litlar heildsölur, smáframleiðendur og einyrkjar.

Við skorum á Alþingi að breyta þessari reglu á þann hátt að birgjar geti sett eignarréttarfyrirvara varðandi vörur sem ekki hafa verið greiddar og þannig gengið að þeim í þrotabúum.

Karen Jónsdóttir eigandi Kaja organic

Eygló Björk Ólafsdóttir formaður VOR (Verndun og ræktun) - Félags um lífræna ræktun og framleiðslu

Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla / Beint frá býli

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×