Lögregla sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem óskað var eftir að ná tali af fjórum ungmennum sem voru á ferli við Drafnarslippinn um klukkan 17:00 á mánudag.
Í samtali við fréttastofu segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, að ungmennin hafi ekki gefið sig fram og engar ábendingar hafi borist. Lögregla sé engu nær.

Aðspurður hvort að ungmennin væru grunuð um að hafa eitthvað með eldsupptök að gera segir Skúli ekki hægt að segja til um það.
„Þau voru þarna um fimmleytið, og eldsins verður vart þremur og hálfum tíma síðar. Við þurfum bara að ná tali af þeim.“
Þá segir Skúli að ekki sé komin nein niðurstaða frá tæknideild lögreglunnar sem vann að rannsókn málsins í gær, en að einhver mynd ætti að skýrast síðar í dag.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út á mánudagskvöld enda var strax ljóst að eldurinn væri gríðarlega umfangsmikill.
Eitt ungmennanna sem lögregla vill ná tali af er talið vera með sítt, rautt hár og annað var á hjóli, en frekari vitneskja um þau liggur ekki fyrir.