Málþingið stendur milli klukkan 9 og 13 í dag, en það er haldið í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík á þriðjudag og miðvikudag.
Málþingið er haldið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga og fer fram í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi að neðan.
Dagskrá:
Opnunarávörp:
- Sigurður Ingi JÓHANNSSON, innviðaráðherra, setur málþingið
- Leen VERBEEK, forseti sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins
- Bjørn BERGE, aðstoðarframkvæmdastjóri Evrópuráðsins
- Dagur B. EGGERTSSON, borgarstjórinn í Reykjavík
1. Mannréttindamiðuð nálgun í stjórnsýslu
- Bernd VÖHRINGER, forseti sveitarstjórnarráðs Evrópuráðsins stýrir umræðum
Til máls taka:
- Gunn Marit HELGESEN, forseti Evrópuráðs sveitarfélaga.
- Cees LOGGEN, forseti samráðshóps um jaðar- og sjávarsvæði
- Rachid MADRANE, forseti samráðshóps svæðisbundinna löggjafarþinga
- Jón Jakob JÓNSSON, fulltrúi ungmennaráðs.
10.40 – 11.00 Spurt og svarað
11.00 – 11.20 Hlé
2. Uppbygging öflugs lýðræðis án aðgreiningar þar sem ungt fólk er drifkraftur breytinga.
- Harald SONDEREGGER, forseti svæðisráðs Evrópuráðsins stýrir umræðum.
Til máls taka:
- Peter van't Hoog, varaforseti Samtaka evrópskra landamærasvæða.
- Jean-Luc VANRAES, varaforseti, svæðisþings Evrópu
- Elias DRAY, varaforseti Evrópuþings ungmenna
- Remigiusz SEPIAŁ, fulltrúi ungmennaráðs
12.00 – 12.25 Spurt og svarað
12.25 – 12.35 Lokaávörp
- Heiða Björg HILMISDÓTTIR, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga mun flytja lokaávarpið.
- Leen VERBEEK, forseti sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins
Fundarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarstjórnarþingsins, Mathieu MORI.