„Vá, svo gaman hjá forsætisráðherra með vinkonu sinni sem er yfirlýstur fasisti, hatar útlendinga og berst gegn réttindum hinsegin fólks, svona á meðal annars!“ skrifaði Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris og baráttukona fyrir réttindum hælisleitenda og flóttamanna, á Twitter í gær eftir móttökuna. Lét hún gubbukarl fylgja með færslunni.
Gegn innflytjendum og hinsegin fólki
Meloni varð forsætisráðherra Ítalíu síðastliðinn október eftir kosningar þar sem flokkar yst á hægrivængnum náðu fordæmalausri kosningu. Hún leiðir flokkinn Bræðralag Ítalíu sem er hægri pópúlistaflokkur sem á rætur að rekja til fasistaflokka.Flokkurinn er andsnúinn innflytjendum, hinsegin fólki og berst gegn réttinum til þungunarrofs. Þá hafa forsvarsmenn hans átt í góðum tengslum við Vladímír Pútín Rússlandsforseta á undanförnum árum.
Vá, svo gaman hjá forsætisráðherra með vinkonu sinni sem er yfirlýstur fasisti, hatar útlendinga og berst gegn réttindum hinsegin fólks, svona á meðal annars! pic.twitter.com/JuPiITDfg9
— Sema Erla (@semaerla) May 16, 2023
Birst hafa myndir af Katrínu hlæja með Meloni og halda í hendurnar á henni. Á samfélagsmiðlum hefur verið sagt að þó að Ísland taki á móti þjóðarleiðtogum Evrópu á fundinum sem nú stendur yfir sé óþarfi að sína slík vinahót við stjórnmálamann af þessu tagi.
Rætur til Mússólíni
„Þetta er nú meiri hörmungin,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Eflingar, í umræðum um Katrínu og Meloni á Facebook síðu Gunnars Smára Egilssonar, ábyrgðarmanns frétta Samstöðvarinnar og áhrifamanns innan Sósíalistaflokksins.

„Það má rekja Bræðralag Ítalíu beint til fasistaflokks Mussólíní, í gegnum nafnbreytingar og sameiningar. Og VG næstum til Kommúnistaflokks Íslands. Þetta eru sögulegar sættir í hugmyndabaráttunni,“ segir Gunnar Smári.
„Flissað með fasistum,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fyrrverandi ritstjóri Kvennablaðsins sáluga á sinni síðu.
Þór Saari, fyrrverandi þingmaður Borgarahreyfingarinnar, gagnrýnir Katrínu einnig harðlega. Telur hann að Ísland ætti ekki að taka við fasistum.
„Fagnaðarfundir Katrínar Jak. og fasistans Giorgia Meloni. Svona er nú komið fyrir „Vinstri-grænum" og íslenskum forsætisráðherra. Halda ekki vatni yfir því að fá að snerta fasista,“ segir Þór á Facebook síðu sinni. „Svei attann!! Það er skömm að þessu öllu saman. Leikrit svo yfirstéttin getið nuddað saman lendunum yfir „búbblum" og undir vökulu auga vélbyssumanna. Það er sorglegt að sjá hvert Ísland er komið.“
Tæta fylgið af VG
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna kemur hins vegar formanni sínum til varnar á síðu Þórs og spyr: „Þegar allir eru fífl í kringum mann þarf maður þá ekki að staldra aðeins við og velta fyrir sér af hverju það er?“

Einnig gagnrýnir hún þá sem viðra langsóttar líkingar um myndina af Katrínu og Meloni.
„Með mjög einbeittri og andstyggilegri framsetningu er beinlínis verið að spyrða Katrínu við fasisma og koma höggi á Vinstri græn sem er hreyfing með fjölbreyttu fólki innanborðs sem starfar af heilum hug með það fyrir augum að bæta samfélagið,“ segir Líf.
Þetta sé ódýr og meiðandi áróður fólks úr tilteknum stjórnmálaflokkum sem vilji tæta fylgið af Vinstri grænum. Áróðurinn sé dapurlegur og hatursfullur. „Með svona ómálefnalegum málflutningi af „vinstri vængnum" og í garð annarra vinstriflokka er verið að tryggja hægrinu völdin um ókomna tíð,“ segir Líf.
Katrín og Giorgia
Frumlegasta innleggið kemur hins vegar ábyggilega frá Guðröði Atla Jónssyni, sem skrifar fyrir Samstöðina. En hann orti ljóð í sex erindum sem hann birtir á Facebook. Ber það heitið Katrín og Giorgia og er þar lýst þeirra bakgrunni og sambandi.
Er það svohljóðandi, birt með leyfi höfundar:
Katrín og Giorgia
Katrín er grænasta kona Íslands
og stjórnar landinu með grænum fingrum
Hún er jafnréttisbaróna
og umhverfisgæslumaður
Giorgia er bræðralagskona Ítalíu
og stjórnar landinu með járnhnefa
Hún er þjóðernisbaróna
og menningarverndari
Þær eru báðar konur með kúlur og kraft
en með ólíkar stefnur og sjónarmið
Þær eru báðar konur með vald og völd
en með ólíkar drauma og vonir
Katrín hefur fengið gagnrýni frá vinstri fólki
fyrir að selja sig til hægri fólks
Hún hefur gert málamiðlanir í skattum
og orkumálum til að halda stjórninni
Giorgia hefur fengið gagnrýni frá hægri fólki
fyrir að vera ofbeldisfull og rasistísk
Hún hefur gert málamiðlanir í Evrópu
og innflytjendamálum til að halda bandalaginu
Þær eru báðar konur af þolmæli og seiglu
en með ólíkar markmið og leiðir
Þær eru báðar konur af bjartsýni og vonum
en með ólíkar ótta og kvíða.