Leikurinn endaði 2-2 eftir að Breiðablik skoraði tvö mörk í uppbótartíma og tryggði jafntefli. Arnar Gunnlagsson, þjálfari Víkinga, var ekki parsáttur með að dómari leiksins hafi farið rúma mínútu fram yfir uppgefinn uppbótartíma. Logi Tómasson fékk að líta rauða spjaldið eftir að hrinda aðstoðarþjálfara Blika.
Jenný Þórunn Stefánsdóttir lögfræðingur setur spurningamerki við ýmslegt sem sonur hennar hafði frá að segja að leiknum loknum:
„Hann sagði okkur að hann hefði séð fulla menn kasta dósum í stúkunni, stuðningsmenn rífast við hvorn annan, stuðningsmenn með ögrandi hegðun í garð hvors annars sem gekk svo langt að menn voru nálægt því að lenda í slagsmálum,“ skrifar Jenný á Facebook.

Á meðan hafi fótboltafyrirmyndirnar rifið kjaft, hrint hvor öðrum og þjálfararnir hnakkrifist.
„Síðan sat mamman heima í stofu og hlustaði á viðtölin eftir leikinn þar sem þjálfari Víkings gerði lítið úr dómara leiksins og velti fyrir sér hvort hann hafi einhverntímann séð leik í ensku úrvalsdeildinni.“
Hún þurfi því að skoða gaumgæfilega hvort svona leikur sé staður sem hún vilji að barn sitt sé á.
„Sonur minn lifir fyrir fótboltann, hann horfir á þessa leikmenn með stjörnur í augunum. Þetta eru hans fyrirmyndir og þjálfararnir leiðtogarnir sem bera á virðingu fyrir. Fótbolti á að snúast um fótbolta, sumt er hluti af leiknum annað á ekki heima í íþróttinni. Gildi KSÍ eru meðal annars virðing, samstaða og gleði. Ég sá ekkert af þessu á leiknum í gær,“ skrifar hún að lokum.