Ríkisstjórnin kynnti verðbólguaðgerðir síðdegis í gær sem eiga að styðja við aðgerðir Seðlabanka Íslands og sporna gegn þenslu, bæta afkomu og taka utan um þá hópa sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir áhrifum verðbólgu og vaxtahækkana.
Meðal helstu aðgerða er 2,5 prósenta hækkun á lífeyri almannatrygginga til að verja kaupmátt örorku- og ellilífeyrisþega. Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, segir 2,5 prósenta hækkun af rúmlega þrjú hundruð þúsund krónum vera tæpar átta þúsund krónur sem varla dugi fyrir klippingu.
Litlir plástrar á stór sár
„Ég get ekki betur séð að þetta séu mikil vonbrigði fyrir okkur sem erum að vinna fyrir þennan berskjaldaða, jaðarsetta, fátæka hóp. Þetta birtist mér að minnsta kosti eins og þetta séu afar litlir plástrar á stór sár. Stór sár sem ríki og sveitarfélög ættu að vera löngu búin að gera miklu meira í að reyna græða almennilega,“ segir Árni Múli.
Stjórn Þroskahjálpar skoraði á stjórnvöld í gær að grípa tafarlaust til aðgerða sem dygðu til að koma í veg fyrir að vaxtahækkanir og verðbólga skertu meira þau sultarkjör sem fatlað fólk býr við.
Mikil vonbrigði
„Það hafa komið yfirlýsingar frá þessari ríkisstjórn og fyrri ríkisstjórn um það að það eigi að koma til móts við þennan jaðarsetta hóp í íslensku samfélagi og bæta stöðu hans og það gerist bara ekki neitt. Og þetta er svo sannarlega ekki skref sem um munar í þá átt og það eru mikil vonbrigði,“ segir Árni Múli jafnramt .
Nauðsynlegt sé að hækka grunnörorkubætur verulega til að koma til móts við þennan hóp fólks, sem hafi vegna fötlunar sinnar og ósveigjanlegs vinnumarkaðar, nánast engin tækifæri til að auka tekjur sínar. Þau þurfi því að lifa eingöngu á örorkubótum. „Þær eru svo lágar, lægri en lágmarks laun – þannig fólk sem þarf að draga lífið með þess er dæmt til fátækar alla ævi.“