Líkt og greint hefur verið frá í dag náðist loksins samkomulag milli BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga í nótt eftir erfiðar kjaradeilur, sem voru um tíma í algjörum hnút og verkfallsaðgerðir höfðu áhrif víða.
Meðal þess sem lamaðist þegar félagsfólk BSRB lagði niður störf var starfsemi sundlauga víða um land. Mörgum finnst fátt betra en að stinga sér til sunds eða ofan í heitan pott og því voru fregnir af aflýsingu verkfalls mörgum miklar gleðifregnir.
Það skyldi því engan furða að þegar Benedikt Sveinsson, vaktstjóri í sundlaug Kópavogs, mætti til vinnu í morgun beið hans röð sundþyrstra Kópavogsbúa.
„Ég mætti hérna um korter í níu og þá var stór hópur af fólki fyrir utan. En af því að það voru ekki allir starfsmenn mættir á svæðið þá, því miður, gátum við ekki opnað fyrr en um hálf tíu. Þá var þessi hópur farinn en samt eftir það gekk allt vel upp,“ sagði Benedikt í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Benedikt segir að heldur færri hafi mætt í sundlaugina í dag en venjulega, um sex hundruð gestir.
„En það er væntanlega af því að það eru enn þá framkvæmdir í gangi og fólk vissi ekki endilega af verkfallslokunum,“ segir Benedikt.
Nú vita svo gott sem allir af verkfallslokum og því má búast við því að margir fari í langþráða sundferð á morgun.