Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar dróst kaupmáttur ráðstöfunartekna saman um 4,8 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Þetta er fjórði ársfjórðungurinn í röð þar sem kaupmáttur dregst saman og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir það merki um grafalvarlega stöðu.
„Sérstaklega í ljósi þess að það virðist alls staðar annars staðar ganga vel. Útflutningsgreinar ganga gríðarlega vel og eru að skila methagnaði. Það sama má segja með fyrirætkin. Þannig að það er alveg ljóst að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar og viðbrögð, bæði ríkisstjórnarinnar og seðlabankans hafa brugðist algjörlega almenningi í landinu,“ segir Ragnar Þór.
Samkvæmt Hagstofunni jukust vaxtagjöld heimilanna um sextíu prósent á milli ára, sem skýrist einkum af mikilli vaxtahækkun. Ragnar Þór segir þungt hljóð í sínum félagsmönnum sem horfi upp á stökkbreyttar afborganir.

Verðbólga mælist nú 9,5 prósent og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna eftir rúmt hálft ár. Seðlabankastjóri hefur kallað eftir hófsemi og sagt að verkalýðshreyfingin þurfi að átta sig á því að það að elta verðbólgu í launahækkunum leiði til vaxtahækkana.
Ragnar Þór hafnar þessu og telur þörf á launahækkunum í samræmi við verðbólgutölur.
„Já, í það minnsta. Og það er bara til að bregðast við hækkandi verði á vöru og þjónustu. En við náum ekki utan um húsnæðismarkaðinn eða stökkbreyttan húsnæðiskostnað, sama hvort það sé í afborgunum af lánum eða leigu. Á meðan stjórnvöld neita að horfast í augu við vandann, sem er gríðarlegur og eykst bara, og sömuleiðis seðlabankinn þá munum við bara sækja þetta í gegnum kjarasamninginn,“ segir Ragnar Þór.
„Og ég heyri það á okkar fólki að það er að skapast mikil stemning fyrir samstöðu til þess að sækja mjög kröftuglega fram í næstu kjarasamningum.“