Harpa Þórisdóttir, móðir hins sextán ára gamla Svans Jóns Norðkvist, sendi menntamálaráðuneytinu bréf vegna stöðu sonar síns og fékk þau svör að hann mætti búast við því að fá upplýsingar um skólavist í lok júní eða allt til byrjunar ágúst. Í samtali við Vísi segir Harpa það allt of seint.
Vísir hefur áður fjallað um unglinga með fötlun sem ekki hafa fengið skólavist. Dagbjartur Sigurður Ólafsson fékk inn í FÁ en umsókn hans var í lausu lofti um nokkurra vikna skeið. Sagði forstjóri Menntamálastofnunar við Vísi að öll börn muni komast að í menntaskólum í ár þó sum þurfi að bíða lengur en önnur.
Svör á milli lok júní og byrjun ágúst
Svanur sem er nemandi í Arnarskóla, sér skóla fyrir börn með fötlun, sótti um skólavist í Tækniskólanum en fékk ekki inn þar. Vegna ráðlegginga frá Menntamálastofnun setti Svanur engan skóla í annað sætið og segir Harpa það afar leitt. Ráðuneytið muni því finna annan skóla handa Svani með viðeigandi úrræði.
Harpa gerir tafir á skólavist sonar síns meðal annars að umtalsefni á Facebook og lýsir hún því þar að hún sé orðin áhyggjufull vegna stöðunnar.
„Svörin frá ráðuneytinu voru þannig að það væri verið að vinna í þessu, það gengi vel og að okkur yrði svarað í lok júní en að því miður væri ekki hægt að svara öllum fyrr en í byrjun ágúst. Þetta er mjög óþægilegt því maður veit ekkert hvenær maður fær svar, hvort maður fær það áður en sumarfrí byrjar.“
Svanur sé í hópi þeirra sem þurfi mesta umönnun og tíma í aðlögun. Allajafna séu tveir starfsmenn með honum í liðveislu. „Þannig það þarf að fara í þetta góður undirbúningur og manni finnst að úrvinnsla þessara umsókna ætti að fara mun fyrr af stað.“
Harpa segir óvissuna vera það versta. Svanur sé í Arnarskóla út sumarið. „Ef að svörin koma ekki fyrr en í lok ágúst þá veit maður ekkert hvort það komi langt hlé á milli og það þolir Svanur ekki vel, þó að við verðum auðvitað í fríi þarna á milli, þá þurfum við meiri tíma til að undirbúa hann undir skólavist á nýjum stað. Það er óþægilegt að vita ekki neitt.“