Það er Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, sem skipar í stöðuna. Hæfnisnefnd var ráðherra til ráðgjafar við mat á umsækjendum.
Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Hildur hefur lokið MSc prófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands og MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur verið settur forstjóri Þjóðskrár frá 1. júní 2022.
Hún var áður framkvæmdastjóri á skrifstofu Þjóðskrár frá árinu 2020. Hún gegndi stjórnunarstörfum sem framkvæmdastjóri hjá Medis á árunum 2008 til 2020 og hefur mikla reynslu af stefnumótun og áætlanagerð í innlendu og alþjóðlegu starfsumhverfi.